Myndin Vier minuten eða Fjórar mínútur eftir þýska leikstjórann Chris Kraus hefur hlotið mörg verðlaun til viðbótar, bæði fyrir handrit og leik.
Myndin gerist í kvennafangelsi fyrir utan Berlín og fjallar um tengsl tveggja kvenna, sem eru sýndar sem andstæður og hliðstæður í senn. Þótt konurnar séu mjög ólíkar, búa þær báðar yfir leyndarmáli sem hefur mótað vegferð þeirra. Þýskur veruleiki dagsins í dag og á tímum síðari heimstyrjaldar birtist í hnotskurn um leið og saga kvennanna er rakin.
Þessar áherslur koma skemmtilega fram í myndmálinu þar sem unnið er með andstæður eins og fegurð og ljótleika, fágun og ofstopa, snilligáfu og sjálfseyðingarhvöt. Ein af þessum sláandi andstæðum er fegurð tónlistarinnar í drunga fangelsins.
Ýmislegt er látið ósagt og verður því áhrifameira fyrir vikið. Myndmálið er knappt og nálgunin skýr í látlausri fegurð þar sem boðskap myndarinnar er komið til skila; að ógleymdum síðustu fjórum mínútunum.
Þessi innlýsing var flutt á undan sýningu á Vier Minuten á Kirkjulistahátíð 2007, í Tjarnarbíói þann 15. ágúst.