Verðlaunamyndin Vier Minuten

Kæru bíógestir.

Verið velkomin á þessa sýningu Kirkjulistahátíðar á þýsku kvikmyndinni Vier Minuten. Þessi mynd hlaut á síðasta ári kvikmyndaverðlaun, sem voru veitt í fyrsta skipti á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík. Þegar myndin var verðlaunuð var filman farin úr landi. Hingað sneru Fjórar mínútur ekki fyrr en í síðustu viku. Það má því segja að í kvöld verði myndin frumsýnd öðru sinni á Íslandi. Á síðasta ári sem óbreytt kvikmynd, en nú sem verðlaunamynd.

En hvað gerir kvikmynd að verðlaunamynd?

Sú dómnefnd sem valdi þessa kvikmynd hafði í farteskinu fjóra mælikvarða:

1) Verðlaunamyndin þarf að teljast góð kvikmynd,
2) hún þarf að vekja með áhorfendum tilvistarspurningar,
3) boðskap hennar þarf að vera hægt að skoða í ljósi hins kristna fagnaðarerindis - miðla von - og
4) kvikmyndina þarf að vera hægt að nota í kirkjustarfi.

Vier Minuten stendur fyllilega undir öllu þessu.

Hér er á ferðinni fantagóð kvikmynd. Hún er vel skrifuð, vel leikin og henni er vel leikstýrt. Kvikmyndatakan er góð, sviðsmyndin og klippingin líka. Áhorfandinn finnur sig í öruggum höndum og getur notið hverrar mínútu!

Myndin hreyfir líka við áhorfandanum. Það er unnið með samspil frelsis- og fjötra og sýnt með áhrifamiklum hætti hvernig það sem fjötrar manninn getur bæði verið hið innra og hið ytra. Erfið reynsla úr fortíðinni er nefnilega byggingarefni í mun sterkari fjötra en steinsteypan og stálið sem fangelsið er byggt út! Það sýnir Vier Minuten.

Myndin miðlar líka von. Hún sýnir okkur hvernig fjötrar eru yfirunnir. Birtir endurlausn. Og þið skuluð taka vel eftir því hvernig myndin öll leiðir okkur á hápunktinum - fjögurra mínútna lokaatriði þar sem fjötrarnir rakna upp og múrarnir.

Allt þetta - og meira til - gerir Vier Minuten að verðlaunamynd.

Góða skemmtun.

Þessi innlýsing var flutt á undan sýningu á Vier Minuten á Kirkjulistahátíð 2007, í Tjarnarbíói þann 15. ágúst.

Höfundur: 
Árni Svanur Daníelsson
Árgangur: 
7. árg. 2007