Eitt af því sem vekur athygli við þessa mynd er að það er unnið með mun fleiri stef en söguna af Drakúla. Til dæmis bregður fyrir varúlfum, Frankenstein og skrímsli hans, Dr. Jekyll og hr. Hyde. Þá er Van Helsing sjálfur - sem einnig er kallaður Gabríel - líklega af því að hann er vinstri hönd Guðs í myndinni - útsendari leynireglu á vegum páfagarðs.
Fram kemur í myndinni að Drakúla greifi hafi öðlast mátt sinn með því að gera sáttmála við kölska. Sú staðreynd að van Helsing er kallaður Gabríel og vinstri hönd Guðs af Drakúla gefur til kynna að hann sé útsendari Guðs.
Þar með er barátta þeirra tveggja í raun sett í samhengi baráttu góðs og ills. Um leið er ljóst að sú barátta snýst í raun um framtíð mannkyns (Drakúla vill koma sínum eigin afkvæmum að og það vill hann gera með því að skapa líf). Að baki býr mynd af Guði sem er virkur og að starfi í heiminum og leiðir hann áfram til góðs í gegnum útsendara sína.
Aðstoðarmaður van Helsings er betlimunkur (friar). Ekki kemur fram hvort hann er fransiskani eða dóminíkani. Hann virðist leyfa sér ýmislegt í krafta þess að vera betlimunkur (en ekki hefðbundinn munkur) sem verður að teljast hæpið að geti staðist. Til að mynda mega betlimunkar ekkert frekar stunda kynlíf fyrir hjónaband eða leggja nafn Guðs við hégóma en munkar í öðrum reglum. Hvort tveggja gerir Carl þó í myndinni. Hér hefur handritshöfundurinn því tekið sér visst skáldaleyfi. Vel mætti hugsa sér að hann reiði sig í því sambandi á vanþekkingu áhorfenda myndarinnar, sem flestir vita líklega harla lítið um betlimunka. Annars eru þessir félagar, van Helsing og betlimunkurinn Carl ósköp skondnir saman.
Þá sjást búddhamunkar á rannsóknarstofu leynireglunnar. Ef ég man rétt þá er jafnframt vísað til þess að þessi regla haldi utanum samstarf nokkurra trúarbragða gegn hverskyns ófreskjum. Það gæti verið athyglisvert að skoða hvaða hugmyndir um samskipti trúarbragða búa þarna að baki.
Sálmaunnendur geta glaðst yfir því að í myndinni er vitnað í upphafsvers Sl 23. Það gerir Frankenstein-skrímslið, sem reynist vera hinn ágætasti fýr, blíður og mildur. Raunar er hann ein geðþekkasta persóna myndarinnar.