Greining á trúar- og siðferðisstefjum:
Grunnur myndanna í þessum fjórleik er Opinberunarbókin en hún er túlkuð bókstaflega. Á þrengingartímabilinu hefur Guð tekið anda sinn frá mannkyninu og þeir sem ekki tóku á móti Kristi veða að kljást við djöfulinn upp á eigin spýtur eða að gangast honum á hönd. Eins og vanalega í kristnum heimsslitamyndum sem bókstafstrúarmenn standa að rís andkristur upp innan Sameinuðu þjóðanna og byrjar á því að koma á friði á milli Ísrael og Palestínu. þau sem neita hins vegar að láta merkja sig á enni eða hægri hönd fá ekki að kaupa sér mat og verða að fara huldu höfði. Samkvæmt þessari mynd eru aðeins þau sem hafa tekið við merki dýrsins útilokuð frá Guð. Í þriðju mynd breytist þetta en þá eru öll þau sem höfðu heyrt um frelsunarboðskap krists fyrir burthrifninguna en ekki tekið við Kristi útskúfuð af Guði, jafnvel þótt þau hafi tekið trú eftir burthrifninguna. Markmið myndanna er því tvíþætt. Annars vegar að boða hið "rétta" fagnaðarerindi um Jesú Krists (skv. myndunum eru nýguðfræðingar t.d. á villigötum)og hins vegar að hræða fólk inn í guðsríkið. Hræðsluáróðurinn stigmagnast með hverri mynd en boðskapurinn er sá að heimsslitin gætu hafist í dag og því er vissarra að hafa valið rétt.