deus ex cinema

Rannsóknarhópurinn Deus ex cinema

Hvort sem við erum kristin eða ekki verður ekki framhjá því horft að vestrænt menningarsamfélag er mjög mótað af gyðingdómi og kristinni trú. Það þarf því ekki að koma á óvart að vestræn menning er mjög lituð af biblíulegum gildum og táknum, og á það jafnt við um myndlist, bókmenntir og kvikmyndir. Trúarleg stef í kvikmyndum hafa lengi vel verið vanrækt og er þar mest við guðfræðinga að sakast, sem hafa afmarkað rannsóknir sínar að miklu leyti við Biblíuna og tilurð hennar.

Syndicate content