Pancho Villa

Leikstjórn: 
Eugenio Martín
Handrit: 
Eugenio Martín [undir nafninu Gene Martin] og Julian Zimet [undir nafninu Julian Halevy]
Leikarar: 
Telly Savalas, Clint Walker, Chuck Connors, Anne Francis, Ángel del Pozo, Mónica Randall, Dan van Husen, José María Prada, Luis Dávila, Ben Tatar og Alberto Dalbés
Upprunaland: 
Spánn og Bretland
Ár: 
1973
Lengd: 
87mín.
Hlutföll: 
1.55:1 (var sennilega 1.85:1)
Ágrip af söguþræði: 

Árið 1916 gerir mexíkanski byltingarforinginn Pancho Villa innrás í Bandaríkin og hertekur smábæinn Columbus í Nýju Mexíkó þegar hann er svikinn um stóra vopnasendingu.

Almennt um myndina: 

Slæmur spaghettí-vestri sem kryddaður er með fjölda fúlra brandara. Leikstjórinn Eugenio Martín er sömuleiðis ábyrgur fyrir öðrum hörmulegum spaghettí-vestra sem þykir jafnvel enn verri, Bad Man’s River (1972).

Pancho Villa var einn af þekktustu byltingarforingjunum í borgarastyrjöldinni í Mexíkó á árum fyrri heimsstyrjaldarinnar og byggir myndin því að nokkru leyti á sögulegum atburðum enda þótt framsetningin sé auðvitað að mestu hreinn skáldskapur.

Greining á trúar- og siðferðisstefjum: 

Framsetningin er í raun ósköp hefðbundin fyrir spaghettí-vestrana enda eru mannslífin þar yfirleitt einskis virði og flestir skotnir til bana af minnsta tilefni. Sjálfur signir Pancho Villa sig í kirkjunni í Columbus eftir að hafa skotið þar nokkra til bana, en presturinn hneykslast á því og sakar hann um guðlast.

Guðfræðistef: 
vilji Guðs, hús Drottins, guðlast, fyrirgefning
Siðfræðistef: 
manndráp, hræsni
Trúarlegir og goðsögulegir staðir: 
kirkja
Trúarleg tákn: 
altari, kross, skriftastóll, talnaband
Trúarleg embætti: 
prestur
Trúarlegt atferli og siðir: 
bæn, signun
Trúarleg reynsla: 
bænheyrsla