Viðtal við Björn Norðfjörð

Árni Svanur Daníelsson hitti Björn Norðfjörð, kvikmyndafræðing, á dögunum og spjallaði við hann um Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Reykjavík. Í spjallinu er meðal annars komið inn á nokkrar áhugaverðar kvikmyndir sem full ástæða er til að vekja athygli á.

Horfa á spjallið ... (55mb, quicktime-kvikmynd)

Leiðin til Guantanamo

Heimildarmyndin Leiðin til Guantanamo (Michael Winterbottom: 2006) er sýnd á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík. Myndin hefur vakið mikla athygli og leikstjórinn fékk Gullbjörninn fyrir leikstjórn á kvikmyndahátíðinni í Berlín á dögunum. Þorkell Ágúst Óttarsson fjallar um myndina hér á vefnum og bendir meðal annars á það hvernig myndin virðist afhjúpa undirliggjandi fordóma í garð múslima.

Lesa umfjöllun um myndina ...

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hefst á morgun

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík er nú haldin í þriðja sinn. Hátíðin í ár er sú umfangsmesta til þessa, en rúmlega 80 myndir í fullri lengd verða sýndar á hátíðinni sem stendur yfir í 10 daga. Fjöldi gesta sækir hátíðina heim, þar á meðal margir leikstjórar sem munu svara spurningum um myndir sínar. Þeirra á meðal eru Goran Paskaljevic, Atom Egoyan og Aleksandr Sokurov, en sá síðastnefndi er handhafi heiðursverðlauna hátíðarinnar í ár.

Trúar- og siðferðisstef í kvikmyndinni Click

Í dag hóf göngu sína þátturinn Lífið og tilveran á sjónvarpsstöðinni NFS. Í þættinum verður vikulega fjallað um trúar- og siðferðisstef í einni kvikmynd eða sjónvarpsþætti. Í þætti dagsins var fjallað um kvikmyndina Click (Frank Coraci: 2006) sem skartar Adam Sandler í hlutverki fjölskylduföður sem á í vanda með að samþætta vinnu og heimili. Honum áskotnast allsherjar-fjarstýring sem gefur bæði vald yfir heimilistækjum og eigin lífið. Hann þykist himinn hafa höndum tekið, en ekki er allt sem sýnist og þegar fjarstýringin tekur völdin er voðinn vís.

Kirkjubíóið og milljónirnar

Eitt af tilraunaverkefnum sumarsins 2006 í Glerárkirkju var að bjóða upp á „Kirkjubíó“. Hugmyndin var annars vegar að prufa hvort áhugi væri til staðar hjá fólki að mæta í kirkju á þriðjudagskvöldi í júli og hins vegar hvernig sýning á kvikmynd og tilboð um umræðu virkaði í því samhengi. Til þess verkefnis fékk Glerárkirkja Árna Svan Daníelsson, guðfræðing og kvikmyndaáhugamann til liðs við sig.

Lesa pistilinn ...

„Milljónir“ í kirkjubíói í Glerárkirkju

Þriðjudagskvöldið 11. júlí kl. 19:30 er boðið upp á kirkjubíó í Glerárkirkju. Sýnd verður mynd Millions frá árinu 2004 sem Danny Boyle leikstýrði. Á undan sýningu er stutt kynning á myndinni og boðið verður upp á umræður að sýningu lokinni.

Da Vinci lykillinn

Kvikmyndin um Da Vinci lykilinn var frumsýnd um helgina hér á landi. Þetta er afar áhugaverð mynd sem við munum að sjálfsögðu gera góð skil hér á vefnum. Þangað til er tilvalið að vísa á efni sem skrifað hefur verið í tilefni af frumsýningunni og er birt á trúmálavefnum trú.is. Þar eru bæði áhugaverðir pistlar og svör við ýmsum spurningum sem tengjast efni mynarinnar.

Lesa áfram á trú.is ...

Kvikmyndaverðlaun kirkjunnar

Kirkjuráð ákvað á fundi sínum nýlega að efna til kvikmyndaverðlauna á vegum Þjóðkirkjunnar. Kvikmyndaverðlaun kirkjunnar verða veitt í fyrsta sinn á kvikmyndahátíð í haust. Hliðstæð verðlaun eru veitt af kirkjum í mörgum nágrannalöndunum. Þannig hlaut Nói Albínói til dæmis kvikmyndaverðlaun sænsku kirkjunnar árið 2003.

Kærleikurinn í kvikmyndum

Laugardaginn 29. apríl munu þeir Árni Svanur Daníelsson doktorsnemi í guðfræði og dr. Pétur Pétursson guðfræðiprófessor flytja erindi um efnið 'Kærleikurinn í kvikmyndum' í Seltjarnarneskirkju. Hefst dagskáin kl. 15.
Í erindum sínum munu þeir Árni Svanur og Pétur kynna í máli og myndbrotum kvikmyndir eftir Rússann Andrei Tarkovskí og Svíann Ingmar Bergman þar sem Óður Páls postula (1.Korintubréf 13) kemur við sögu.

The Gospel of John í Neskirkju

Síðasta myndin í Jesúbíóröðinni verður sýnd nk. sunnudag 9. apríl kl. 15. Þetta er ein nýjasta Jesúmyndin (2003). Hún er gerð eftir Jóhannesarguðspjalli og fylgir texta guðspjallsins nokkuð nákvæmlega. Christopher Plummer er sögumaðurinn sem leiðir áhorfendur í gegnum guðspjallið. Myndin er hluti af seríu sem kallast The Visual Bible og miðar að því að gera kvikmyndir út frá öllum ritum Biblíunnar.

Hún þykir með áhugaverðari Jesúmyndum, m.a. fyrir það hvernig farið er með samband hins mannlega og guðlega í Jesú. Verið velkomin á Jesúbíó í Neskirkju á morgun.

Syndicate content