Tvöföld sýning á Börnum og foreldrum

Börn - frétt

Á sunnudaginn kemur verður tvöföld sýning á kvikmyndunum Börn og Foreldrar í Háskólabíói. Fyrri myndin verður sýnd kl. 16 og sú síðari kl. 18. Miðaverð á hvora mynd eru 1000 krónur, en það kostar aðeins 1500 krónur að sjá þær báðar. Þetta eru með athyglisverðustu íslensku myndum síðustu ára og það er full ástæða til að láta þær ekki fara framhjá sér.

Velkomin á vefinn

Dec-borðinn - frétt

Verið velkomin á nýjan vef Deus ex cinema. Hann verður til smátt og smátt til. Vefurinn hefur nú fengið nýtt heimili á www.dec.is. Gamli vefurinn mun þó áfram lifa, en allt efni verður flutt hingað með tíð og tíma. Samfara uppsetningu á nýjum vef í nýju kerfi verður líka settur upp vefur á ensku.

Vier Minuten hlýtur Kvikmyndaverðlaun kirkjunnar

Kvikmyndin Vier Minuten eftir Chris Kraus hlaut Kvikmyndaverðlaun Þjóðkirkjunnar sem voru veitt í fyrsta skipti á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík 2006. Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands veitti verðlaunin í lokahófi hátíðarinnar.

Kvikmyndaverðlaun kirkjunnar eru veitt vandaðri kvikmynd sem fjallar um tilvistar-, siðferðis-, eða trúarlegar spurningar. Valið var milli fjórtán kvikmynda sem allar voru sýndar í flokkinum Vitranir á hátíðinni.

Vier Minuten hlýtur Kvikmyndaverðlaun kirkjunnar

Vier Minuten

Kvikmyndin Vier Minuten eftir Chris Kraus hlaut Kvikmyndaverðlaun Þjóðkirkjunnar sem voru veitt í fyrsta skipti á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík 2006. Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands veitti verðlaunin í lokahófi hátíðarinnar.

Kvikmyndaverðlaun kirkjunnar veitt í fyrsta sinn

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík - 120

Kvikmyndaverðlaun kirkjunnar verða veitt í fyrsta skipti á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík sem lýkur á sunnudag. Verðlaunin verða veitt framúrskarandi kvikmynd sem þykir vekja með áhorfendum áhugaverðar tilvistarspurningar. Verðlaunin verða afhent af biskupi Íslands við hátíðlega athöfn á morgun, laugardaginn 7. október í lokahófi kvikmyndahátíðarinnar í aðalútibúi Landsbankans í Austurstræti kl. 20.

Pallborðsumræður um danskar kvikmyndir

Margar áhugaverðar danskar kvikmyndir eru sýndar á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík. Af því tilefni verða haldnar pallborðsumræður um danska kvikmyndagerð í Hallgrímskirkju föstudaginn 6. október kl. 16. Fjallað verður um nýlegar kvikmyndir eins og Adams æbler, Bænken, Arven, Drabet auk mynda sem sýndar eru á hátíðinni. Rætt verður um arfleifð og áhrif Carl Theodor Dreyers í danskri kvikmyndagerð og trúar-, tilvistar- og siðferðisstef í myndunum.

Þátttakendur eru Gunnlaugur A. Jónsson, prófessor, Oddný Sen, kvikmyndafræðingur og Gunnar J. Gunnarsson, lektor. Pallborðsumræðurnar er haldnar í samvinnu við Deus ex cinema, rannsóknarhóp um trúarstef í kvikmyndum, og Biskupsstofu. Aðgangur er ókeypis.

The Road to Guantanamo

Syndicate content