Í dag var haldin ráðstefna í Háskólabíó um myndina Blade Runner. Að henni stóðu Deux ex cinema og Filmundur, en Þorkell Ágúst Óttarsson var aðal skipuleggjandi hennar. Flutt voru tvö erindi, Ólafur H. Torfason fjallaði um þann mannskilning sem birtist í Blade Runner og fleiri vísindaskáldsögum og Þorkell Ágúst Óttarsson fjallaði um Edensstef í Blade Runner. Að erindunum loknum áttu sér stað líflegar umræður um ýmsa þætti myndarinnar. Það er mál manna að hér hafi verið um vel heppnaðan viðburð að ræða sem vonandi verður framhald á.
Einn hluti af vef Deus ex cinema er vefrit þar sem birtast munu fræðilegar greinar um trúarstef í kvikmyndum, pistlar og ritdómar. Nú hafa tvær nýjar greinar bæst við: Þorkell Ágúst Óttarsson fjallar um Edensstef í myndinni Blade Runner í greininni Það er eitthvað rotið í Eden og Gunnlaugur A. Jónsson gerir grein fyrir biblíulegum stefjum í kvikmyndum í greininni Réttlæti og fögnuður kyssast.
Eins og áður hefur verið sagt frá verður haldin ráðstefna á vegum Deus ex cinema og Filmundar um kvikmyndina Blade Runner n.k. laugardag. Það er því viðeigandi að Blade Runner sé mynd vikunnar að þessu sinni. Þorkell Ágúst Óttarsson fjallar í stuttu máli um myndina í umsögn sinni á kvikmyndasíðu. Hann fjallar jafnframt mjög ítarlega um hana í grein sinni Það er eitthvað rotið í Eden.
Sífellt bætist við í myndaflóruna á vefnum, í vikunni bættust við umfjallanir um myndirnar Carlito\'s Way, Gattaca, Deconstructing Harry og State and Main. Þetta eru allt áhugaverðar myndir þar sem finna má fjölbreytt trúarstef.
Eftir rúma viku verður haldin ráðstefna um kvikmyndina Blade Runner. Ráðstefnan verður haldin í Háskólabíó laugardaginn 12. maí frá kl. 14 til 18. Á ráðstefnunni verður myndin sýnd, svo verða fluttir þrír fyrirlestrar um efni hennar frá ólíkum sjónarhornum. Að því loknu verða umræður. Þetta er viðburður sem enginn unnandi framtíðarmynda ætti að láta fram hjá sér fara.
Vefur Deus ex cinema hefur nú verið fluttur yfir á vefþjón Hugvísindastofnunar. Þar verður framtíðarheimili hans. Unnið er að því að fá stutta og hnitmiðaða vefslóð fyrir vefinn þannig að notendur hans velkist ekki í vafa um hvernig þeir eigi að komast hingað. Samfara þessu fer fram frekari þróunarvinna á uppbyggingu og innihaldi vefjarins. Örvar H. Kárason, vefstjóri Heimilda.is og Hugvísindastofnunar, hefur séð okkur fyrir tæknilausnum í sambandi við vistun og birtingu vefjarins.
'Þú skalt ekki girnast konu náunga þíns, ekki þræl hans eða ambátt, ekki uxa hans eða asna, né nokkuð það sem náungi þinn á.' Mynd vikunnar er þessu sinni er Dekalog X eftir Krzysztof Kieslowski. Hún var fyrst sýnd árið 1988 og er seinasta myndin í seríu Kieslowski um boðorðin. Ingólfur Hartvigsson hefur fjallað ítarlega um Dekalog í kandidatsritgerð sinni Dekalog. Guðfræðileg greining á þáttaröðinni Dekalog eftir pólska leikstjórann Krzysztof Kieslowsky.
Lesa umfjöllun um myndina
Þessa dagana stendur yfir þróunarvinna við vef Deus ex cinema. Enn er langt í land með að fullklára vefinn, en vonir standa til að hægt verði að opna vefinn með pompi og pragt í lok maí. Vefurinn mun innihalda umfjöllun um kvikmyndir (einkanlega út frá trúarstefjum), stuttar greinar og pistla, umfjöllun um bækur, hugtakaskilgreiningar o.fl.
Í greininni Kristur á stríðsvellinum fjallar Þorkell Ágúst Óttarsson um kristsgervinga í fjórum stríðsmyndum: Saving Private Ryan, The Thin Red Line, Platoon og The Dirty Dozen. Greinin er athyglisverð og birtir nýja sýn á stríðsmyndir og hlutverk þeirra.
Mynd Lars von Trier, Breaking the Waves, er kvikmynd vikunnar að þessu sinni. Myndin, sem var frumsýnd árið 1996, greinir frá ungri konu að nafni Bess, sem er alin upp í guðsótta og góðum siðum. Eins og flestir vita sem hafa séð Breaking the Waves, er myndin full af trúarlegum tilvísunum, t.a.m. hafa sumir séð kristsgerving í Bess.