Þetta er einn af fjórum spaghettí-vestrum ítalska leikstjórans Francos Giraldis, en hann var aðstoðarleikstjóri Sergios Leones við gerð tímamótaverksins A Fistful of Dollars nokkrum árum áður. Í bók sinni Western All'Italiana: The Specialists taka þeir Antonio Bruschini og Antonio Tentori fyrir þá níu leikstjóra sem þeir telja að beri af í spaghettí-vestrunum og er Franco Giraldi þar í hópi ásamt Sergio Leone, Sergio Corbucci, Sergio Sollima, Duccio Tessari, Tonino Valerii, Enzo G. Castellari, Giulio Petroni og Giuseppe Colizzi.
Spaghettí-vestrinn A Minute to Pray, a Second to Die er hins vegar ekkert snilldarverk á borð við myndir Leones og er hér í besta falli um að ræða mynd sem er rétt fyrir ofan meðallag að gæðum. Persónusköpunin er þó mjög í anda spaghettí-vestranna og eru menn jafnan skotnir til hægri og vinstri af minnsta tilefni, auk þess sem sögupersónurnar reynast oftar en ekki ótrúlega færar með annars mjög svo ónákvæm skotvopn sín. Þannig hitta menn svo til hvað sem er með skammbyssu af löngu færi og ná jafnvel að skjóta riffla úr höndum manna í tvennt.
Andlitin eru spaghettí-vestra unnendum mörg vel kunn enda koma sömu aukaleikararnir hvað eftir annað við sögu í þessum myndum. Frammistaða helstu leikaranna er ennfremur eins og búast má við en Alex Cord verður þó að teljast frekar litlaus í hlutverki aðalsöguhetjunnar Clays McCords. Tónlist Carlos Rustichellis er á köflum nokkuð góð en útsetningin er í höndum Brunos Nicolais.
DVD diskurinn frá MGM í Bandaríkjunum er því miður meingallaður. Ekki er aðeins slæmt að myndin skuli ekki höfð í réttum breiðtjaldshlutföllum (er aðeins í 1.85:1 í stað 2.35:1) heldur hefur hún verið stytt um tuttugu mínútur og vantar þar t.d. mjög svo bölsýnan endinn sem að sjálfsögðu gjörbreytir efni myndarinnar og ásýnd hennar. Í ofan á lag er upprunalega sýningarlengd myndarinnar tilgreind aftan á kápunni, þ.e. 118 mín. en á diskinum er hún aðeins tæpar 99 mín. Aukaefnið á diskinum er auk þess ekkert að undanskyldum enskum texta sem í sjálfu sér telst gagnlegur.