Greining á trúar- og siðferðisstefjum:
Áhugavert er að Kennedy og hans menn eru meðvitað tengdir trúnni. Kennedy er sýndur í messu og Kenny O'Donnell fer að skrifta í kaþólskri kirkju sem er opin 24 tíma sólahrings því heimsendir gæti verið á morgun. Einnig er marg oft talað um þá þrjá sem "góða menn" sem elska lífið. Talsmenn stríðs eru hins vegar aldrei sýndir á bæn og þeir sækja aldrei messur. Að lokum eru tengsl þeirra við trúna ítrekuð þegar Kenny O'Donnell spyr flugmann sem mun fljúga yfir Kúbu hvort hann sé trúaður maður. Flugmaðurinn játar því og greinilegt er að Kenny O'Donnell er létt við að heyra fréttirnar. Flugmaðurinn er síðar skotinn niður af Sovétmönnum en hann var sá eini sem fórst í stríðinu. Flugmaðurinn verður síðan örlagavaldur því herinn vill ólmur fá að hefna dauða hans en Kennedy ákveður að betra sé að bjóða hina kinnina en að svara ranglæti með renglæti. Ákvörðun hans reynist rétt og á stórann þátt í að ekki braust út sríð. Dómsdagur kemur einnig mikið fyrir í myndinni. Sve!pplaga skýi er endurtekið skotið inn í myndina en hún byrjar einnig á slíku skoti. Tónlistin undirstrikar þetta einnig en í myndinni eru lög eins og Eve Of Eternity og One Life Left spiluð. Nú þegar hefur verið minnst á 24 tíma skriftir og margt annað væri hægt að tína til. Heildar niðurstaða myndarinnar er sú að kærleikurinn er mestur og ávextir hans eru sætir og Guði þóknanlegir.