Greining á trúar- og siðferðisstefjum:
Deconstructing Harry er ein af athyglisverðari myndum Woody Allen síðustu árin (af nógu er að taka því Allen er afar iðinn við kolann, eins og margir vita). Myndina má skilja sem tilraun til að varpa ljósi á hinn dæmigerða bandaríska millistéttar-nútímamann.
Í myndinni koma fyrir mörg trúarleg og siðferðileg stef. Í henni er t.d. að finna athyglisverða mynd af dauðanum sem birtist sem maðurinn ljáinn. Einnig birtist þarna áhugaverð mynd af djöflinum og helvíti. Það eru þó einkum spurningar siðferðilegs eðlis sem vert er að staldra við, en af þeim úir og grúir í myndinni. Meðal þess má nefna framhjáhald (sem Harry Block iðkar af miklum móð), mannrán, lygar o.fl. o.fl.