Greining á trúar- og siðferðisstefjum:
Kvikmyndin Cool Hand Luke hefur af ýmsum verið túlkuð þannig að aðalpersónan, Luke, feli í sér skýra vísun til Jesú Krists eða að líta megi á hann sem kristsgerving. Hann kemur utan að inn í aðstæður þar sem menn eru ófrjálsir og kúgaðir og hefur loks slík áhrif að samfélag fanganna breytist og von vaknar í brjóstum sumra. Hann ögrar hins vegar fangelsisyfirvöldum og kemst upp á kant við þau en þau reyna með ýmsu móti að brjóta hann á bak aftur. Í myndinni hafa sumir séð vísun til hreinsunar musterisins þegar Luke fær fangana til að hraða sér við að malbera veg. Einnig má sjá vísun til píslarsögunnar og bænabaráttunnar í Getsemane í lokaatriði myndarinnar í kirkjunni. „Blindur“ fær jafnvel sýn þegar spegilsólgleraugu fangavarðarins, sem gekk undir heitinu „Man with no eyes“, brotna í lok myndarinnar. Krossfestingarstellingu bregður fyrir þegar Luke liggur á borði eftir að hafa borðað 50 egg. Þá er Luke þrjá daga í einangrunarklefa eftir að móðir hans deyr og má í því sjá vísun til þess að Jesús var grafinn en reis upp á þriðja degi. Eftir dauða Luke segir Dragline samföngum sínum frá því sem gerðist og viðheldur þannig minningunni um hann og þeim áhrifum sem hann hafði haft. Í því má sjá vísun til frumkirkjunnar. Athyglisvert er einnig að Luke er sá sem sækir og heldur á snák sem einn fangavarðanna hafði skotið (sbr. túlkun á 1M 3.15). Fleira mætti tína til. Af þessu er ljóst að færa má rök fyrir því að í persónu Luke sé um allnokkrar vísanir til Krists að ræða þótt deila megi um hvort rétt sé að tala um kristsgerving.
Nokkrir trúarsöngvar koma fyrir í myndinni og árétta þessa túlkun. Eftir að Luke hefur áunnið sér virðingu samfanganna syngur einn þeirra við gítarundirleik negrasálminn „Just a closer walk with thee“ - sem er bæn um nánari eftirfylgd við Jesú. Þegar Luke er í refsingarskyni látinn grafa gröf og moka ofan í hana aftur og aftur syngur sami fangi sálminn „Ain´t no grave gonna hold my body down“ sem vísar til upprisunnar frá dauðum.
Myndin Cool hand Luke er að mörgu leyti vel gerð. Gott handrit, sterk persónusköpun og góður leikur eru aðalsmerki hennar og áhugavert er að velta fyrir sér vísununum til Krists í henni, enda er það svo að þessi mynd hefur lengi verið talin eins konar frummynd eða fyrirmynd að kvikmyndum sem vísi að meira eða minna leyti til Krists.