Greining á trúar- og siðferðisstefjum:
Þessi sjónvarpsmynd er gott dæmi um það hversu vondar sumar heimsslitamyndireru. Heimsslitahugmyndin í myndinni er aðeins að litlu leyti sótt íBiblíuna. Grunnurinn er einhver skálduð opinberun frá Maríu mey, sem afeinhverjum óskýranlegum ástæðum hefur verið innsigluð og varðveitt í tvennulagi. Það á víst að vera voðalega spennandi að komast að því hvor stelpangengur með andkrist en einhvern vegin stendur manni á sama um þetta alltsaman. Handritið er svo illa skrifað og persónusköpunin er svo vond aðmyndin nær sjaldan að fanga mann. Ég ætla því ekki að eyða mörgum orðum áþessa mynd en fyrir þá sem hafa áhuga þá var myndin gefin út á myndbandi meðíslenskum texta. Hún ætti því að vera fáanleg einhver staðar.
Það eru nokkur hefðbundin stef í þessari mynd. Hin illu öfl birtast í líkisvarts fugls, en í heimsslitamyndum (sem og flestum öðrum myndum) er krákaneða hrafninn tákn hins illa. Afbrigðilegt kynlíf er einnig tengt djöflinum,en það heyrir varla til tíðinda í heimsslitamyndum.
Þessi mynd greinir sig þó frá flestum heimsslitamyndum að því leyti að umtvær meyjarfæðingar er að ræða og Kristur endurfæðist sem stelpa! Það ereinnig nokkuð skemmtilegur leikur að orðum Krists um að "ef auga þitt tælirþig til falls, þá ríf það úr og kasta frá þér". Drengur einn reynir aðnauðga annarri stelpunni en nær ekki fram markmiði sínu vegna þess að hannmissir annað augað. Einnig má sjá tilvísun í þá staðhæfingu Krists að "augaðer lampi líkamans". Börnin eru einmitt greind í sundur með því að líta íaugu þeirra.
Og að lokum smá vangavelta. Hvers vegna eru kristnir alltaf að reyna að komaí veg fyrir heimsslitin í myndum sem þessum? Á það ekki að vera fagnaðarefniað Kristur klári verk sitt og geri jörðina að nýrri Eden, þar sem dauði ogsynd heyra sögunni til? Í stað þess að fanga tímamótunum reyna hinir trúuðuað kveða djöfulinn niður til að tryggja að samfélagið eins og við þekkjumþað breytist ekki. Niðurstaðan virðist því vera sú að nútíma samfélag okkarsé betra en himnaríki á jörðu!!!