Carlitos Way

Leikstjórn: 
Brian De Palma
Handrit: 
David Koepp eftir skáldsögu Edwins Torres
Leikarar: 
Al Pacino, Sean Penn og Penelope Ann Miller
Upprunaland: 
Bandaríkin
Ár: 
1993
Lengd: 
145mín.
Hlutföll: 
us.imdb.com/Details?0106519
Ágrip af söguþræði: 

Stórkostleg glæpamynd eftir hinn mistæka leikstjóra Brian De Palma. Fyrrverandi eiturlyfjakongur Carlito Brigante tekur trú í fangelsi og ákveður að snúa af veg syndarinnar og lifa heiðarlegu lífi. Hann hefur hug á því að kaupa hlut í fyrirtæki á sólríkum stað þar sem hann getur byrjað upp á nýtt. En fyrst þarf hann að vinna sér inn pening.

Greining á trúar- og siðferðisstefjum: 

Þessi mynd er á vissan hátt útlegging á orðum Guðs við Kain fyrir bróðurmorðið: "Er því ekki þannig farið: Ef þú gjörir rétt, þá getur þú verið upplitsdjarfur en ef þú gjörir ekki rétt, þá liggur syndin við dyrnar og hefur hug á þér, en þú átt að drottna yfir henni?" (1M 4:7). Carlito á erfitt með að losna undan syndinni og misstígur sig á leiðinni. Hann stelur, drepur, fyllist hroka og brýtur lög gegn betri vitund. Að lokum nær syndin völdum og yfirbugar hann. Í myndinni er mikið gert úr þrá Carlitos eftir paradís og paradísarmissi hans að lokum.

Hliðstæður við texta trúarrits: 
1M 3, 1M 4:7, 1M 4:15
Guðfræðistef: 
synd, hroki, stolt
Trúarbrögð: 
Gyðingdómur
Trúarlegt atferli og siðir: 
signing
Trúarleg reynsla: 
að taka trú