Greining á trúar- og siðferðisstefjum:
Eins og fyrri myndin 2001: A Space Oddysey er þessi háguðfræðileg. Kassalöguðu súlurnar eru augljóslega tákn fyrir sköpunarmátt Guðs, þ.e. heilagan anda. Því má líklega kalla þær heilags-anda-gervinga. Þær ganga út af ,,Guði" til að framfylgja vilja hans. Þótt þessi tengsl séu augljósari í 2001 þá eru samt sem áður hliðstæður í þessari mynd (og hér ættu allir að hætta að lesa sem ekki hafa séð myndina). Í lok myndarinnar er kassalaga súla sýnd svífa yfir vatni Evrópu, en ásýnd og kaós (djúp) Evrópu hefur verið breytt í sannkallaðan Edenlund. Hér má greina tilvísun í 1M 1:1-2: ,,Í upphafi skapaði Guð himinn og jörð. Jörðin var þá auð og tóm og myrkur grúfði yfir djúpinu, og andi Guðs sveif yfir vötnunum." Sköpuninni á Evrópu fylgir einnig mikið ljós (og Guð sagði: verði ljós) sem og ný sól.Einnig má sjá sterkan trúarlegan boðskap í því að Jörðin er allt í einu komin með tvær sólir sem leiðir til þess að á henni ríkir eilífur dagur. Eins og Floyd segir í myndinni: ,,...þegar við höfum áttað okkur á því að við erum aðeins leiguliðar á þessari jörðu. Leiguliðinn hafði gefið okkur viðvörun og nýtt tækifæri.