Ráðstefna um Blade Runner í Háskólabíó

Eftir rúma viku verður haldin ráðstefna um kvikmyndina Blade Runner. Ráðstefnan verður haldin í Háskólabíó laugardaginn 12. maí frá kl. 14 til 18. Á ráðstefnunni verður myndin sýnd, svo verða fluttir þrír fyrirlestrar um efni hennar frá ólíkum sjónarhornum. Að því loknu verða umræður. Þetta er viðburður sem enginn unnandi framtíðarmynda ætti að láta fram hjá sér fara.

Blade Runner (1982) eftir leikstjórann Ridley Scott (The Gladiator) er ein frægasta og virtasta framtíðarmynd sem gerð hefur verið. Eins og svo mörg stórvirki kvikmyndasögunanr kolféll myndin þegar hún var fyrst sýnd í bíó. Síðan þá hefur hún hlotið uppreisn æru og er af mörgum talin besta mynd allra tíma. Fimmtudaginn 10. maí mun Filmundur sýna þetta stórvirki sögunnar, en þá verður leikstjóraútgáfa myndarinnar frá 1991 sýnd en sú útgáfa er af flestum talin betri.

Laugardaginn 12. maí verður svo ráðstefna um Blade Runner. Þann dag verður myndin sýnd kl. 14:00 og verður ráðstefnan strax í kjölfar sýningarinnar, eða kl. 16:10. Á ráðstefnunni mun Ólafur H. Torfason kvikmyndafræðingur ræða um mannlíki í kvikmyndum en fyrirlestur hans heitir 'Mannlíki og mannskepnur - frá maníkeum til Matrix.' Þá mun Hilmar Ernesto Ramos bókmenntafræðingur ræða um niðurstöður sínar í B.A. ritgerð sinni um myndina en fyrirlestur hans heitir ,,Lífgervill verður maður.' Að lokum mun Þorkell Ágúst Óttarsson, B.A. í guðfæði, ræða um Eden stef í Blade Runner en fyrirlestur hans ber heitið ,,Það er eitthvað rotið í Eden'. Þetta er í fyrsta skipti á Íslandi þar sem ráðstefna er haldin um eina kvikmynd og því söguleg uppákoma.
Dagskrá
14.00 - Blade Runner sýnd
16.10 - Hilmar Ernesto Ramos: Lífgervill verður maður
16.40 - Ólafur H. Torfason: Mannlíki og mannskepnur - frá maníkeum til Matrix
17.10 - Þorkell Ágúst Óttarsson: Það er eitthvað rotið í Eden

Boðið verður upp á umræður að fyrirlestrunum loknum.