Trúlega Forman í Dómkirkjunni

Gaukshreiðrið - myndrammi

Hvað einkennir kvikmyndagerð Milos Forman? Hvaða efni fæst hann helst við í kvikmyndum sínum? Hvernig birtast trúarleg stef í kvikmyndum hans? Þessar og fleiri spurningar verða ræddar í kvöldkirkjubíói í Dómkirkjunni fimmtudaginn 24. september.

Þar munu Oddný Sen, kvikmyndafræðingur, og sr. Guðni Már Harðarson, flytja stutta fyrirlestra um kvikmyndagerðarmanninn Forman og um trúarstef í Gaukshreiðrinu. Sr. Árni Svanur Daníelsson, ritstjóri Deus ex cinema, kynnir dagskrána.

Tékkneski leikstjórinn Milos Forman er heiðursgestur Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík. Hann er einn fremsti kvikmyndaleikstjóri samtímans. Forman er handhafi heiðursverðlauna hátíðarinnar í ár. Þrjár af myndum hans eru sýndar á hátíðinni.

Dagskráin hefst kl. 20:30. Aðgangur er ókeypis.

Kvöldkirkjubíó verður í Dómkirkjunni einu sinni í mánuði í vetur. Þar verða teknir fyrir áhugaverðir kvikmyndagerðarmenn og spennandi trúarleg stef.