Öðruvísi kvikmyndahátíð

Existensiell filmfestival

Existentiell Filmfestival i Dalarna verður haldin 2. og 3. apríl næstkomandi. Þetta er í sjöunda sinn sem hátíðin er haldin. Hér er á ferðinni öðruvísi kvikmyndahátíð þar sem tilvistarstef og samræða eru sett í öndvegi. Að þessu sinni er hátíðin haldin undir yfirskriftinni „Hrun og endurnýjun“ (Sammanbrott och förnyelse á frummálinu).

Meðal mynda sem verða sýndar eru La Zona, Wall.E. og The Secret Life of Words. Meðal þátttakenda í semiörum eru K G Hammar, fyrrum erkibiskup Svíþjóðar, Helena von Zweigbergk, Svante Axelsson, Dilsa Demirbag Sten, Mustafa Can, Isabella Lövin og Johan Söderberg.

Nánar upplýsingar er að finna á vef hátíðarinnar. Á enskri vefsíðu Deus ex cinema er einnig að finna viðtal við Tomas Axelson, skipuleggjanda hátíðarinnar, sem tekið var að lokinni hátíðinni árið 2008.