Kvikmyndahátíðir og kvikmyndaverðlaun

Veggspjald kvikmyndahátíðarinnar í Gautaborg 2009

Hvernig fer starf dómnefnda kirknanna á kvikmyndahátíðum fram? Hvers konar kvikmyndir hafa verið verðlaunaðar upp á síðkastið? Arnfríður Guðmundsdóttir og Árni Svanur Daníelsson hittust á dögunum og ræddu saman um kvikmyndaverðlaun og kvikmyndahátíðir. Bæði hafa setið í dómnefnd íslensku kirkjunnar auk þess sem Arnfríður situr í dómnefnd sænsku kirkjunnar á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg sem hefst á morgun.