Finnska prestamyndin Afklæddur maður — Riisuttu mies verður sýnd í Kirkjubíói í Grafarvogskirkju fimmtudaginn 15. janúar. Myndin fjallar um prestinn Antti Pitkänen sem stendur í stríðu í sínum litla söfnuði í borginni.
Bestu stundirnar eru æfingarnar með þungarokkshljómsveitinni! En eiginkona hefur mikinn metnað fyrir hans hönd og vill að hann verði næsti biskup í stiftinu. Við tekur heilmikil sjálfsmyndakreppa hjá Antti sem er alls ekki viss um það hvað hann vill sjálfur í lífinu.
Kirkjubíóið hefst kl. 19:30. Aðgangur er ókeypis. Umræður verða að sýningu lokinni.