Trúarstef í kvikmyndum í Grafarvogskirkju

Joan of Arcadia - Guð sem lítil stúlka

Trúarstef í kvikmyndum verður viðfangsefni Kirkjubíós í Grafarvogskirkju fimmtudaginn 6. nóvember næstkomandi kl. 19:30. Þá ætlar sr. Árni Svanur Daníelsson að fjalla um það hvernig trú og trúarstef birtast í kvikmyndum. Þetta verður fyrirlestur í léttum dúr og fullt af sýnidæmum.

Árni Svanur er prestur á biskupsstofu sem sinnir trúfræðslu á vefnum. Hann hefur sinnt rannsóknum á guðfræði og kvikmyndum um árabil og flutt fjölda fyrirlestra um þetta efni. Hann er jafnframt meðlimur í rannsóknarhópnum Deus ex cinema.

Kvikmyndin er einn mikilvægasti miðill samtímans og bíómyndir og sjónvarpsþættir eru stór hluti af daglegu lífi okkar allra. Margir líta fyrst og fremst á kvikmyndir sem afþreyingu, aðrir sem listaverk. Góð kvikmynd getur verið hvort tveggja en hún getur jafnframt verið vettvangur fyrir lífsspurningar.

Allir velkomnir!