Snjór hlýtur Kvikmyndaverðlaun kirkjunnar

Snjór - myndrammi

Kvikmyndin Snjór eftir leikstjórann Aida Begic hlaut Kvikmyndaverðlaun Þjóðkirkjunnar sem voru veitt í þriðja sinn á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík 2008. Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, veitti verðlaunin í lokahófi hátíðarinnar.

Kvikmyndaverðlaun kirkjunnar eru veitt vandaðri kvikmynd sem fjallar um tilvistar-, siðferðis-, eða trúarlegar spurningar. Valið var milli fjórtán kvikmynda sem allar voru sýndar í flokkinum Vitranir á hátíðinni.

Í umsögn dómnefndar um myndina segir:

Skuggi stríðs vofir yfir litlu þorpi. Lífsbaráttan er erfið og það reynir á samtakamátt eftirlifenda. Myndin minnir á mikilvægi samstöðu og gildi þess að þekkja uppruna sinn.

Trú er sýnd sem fallegur og eðlilegur hluti daglegs lífs. Sýnir, helgisiðir og myndlíkingar tjá guðlega nærveru og miðlar myndin margþættum veruleika á aðgengilegan hátt.

Andstæðum mannlegs lífs eru gerð góð skil. Myndin teflir saman stríði og friði, ótta og hugrekki, græðgi og nægjusemi, sorg og gleði.

„Snjór“ er uppgjör við nálæga fortíð og afleiðingar stríðsátaka. Myndin er tímalaus saga um von.

Aida Begic fæddist í Sarajevo árið 1976. Hún útskrifaðist sem leikstjóri úr Sarajevo Academy of Performing Arts árið 2000. Snjór er fyrsta mynd hennar í fullri lengd.

Snjór gerist í litlu þorpi í stríðshrjáðri Bosníu árið 1997. Hér segir frá litlum hópi fólks sem hefur skapað sinn eigin heim í mikilli einangrun. Öll hafa þau misst ástvini. Þau halda sér á lífi gegnum minningar sína og drauma og hafa búið sér til eins konar draumaland í þorpinu. Dag einn koma tveir viðskiptamenn sem bjóða þeim pening fyrir að yfirgefa þorpið. Ættu þau að taka tilboðinu sem gæti bjargað lífi þeirra en um leið tortímt sálu þeirra?

Í dómnefnd voru dr. Arnfríður Guðmundsdóttir, Árni Svanur Daníelsson, sr. Sigrún Óskarsdóttir og Þorkell Ágúst Óttarsson.

Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík lýkur í kvöld.