Kvikmyndaverðlaun kirkjunnar verða veitt í þriðja skipti á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík sem hefst á fimmtudaginn kemur. Verðlaunin hlýtur framúrskarandi kvikmynd sem þykir vekja með áhorfendum áhugaverðar tilvistarspurningar. Fjögurra manna dómnefnd velur verðlaunamyndina.
Dómnefndina skipa að þessu sinni dr. Arnfríður Guðmundsdóttir, Árni Svanur Daníelsson, sr. Sigrún Óskarsdóttir og Þorkell Ágúst Óttarsson.
Um dómnefndina
Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir er dósent í samstæðilegri guðfræði með sérstakri áherslu á kvennaguðfræði við Háskóla Íslands. Hún hefur m.a. fengist við rannsóknir á trúarstefjum í kvikmyndum og flutt fjölda fyrirlestra og skrifað greinar um það efni.
Árni Svanur Daníelsson er guðfræðingur. Hann starfar sem verkefnisstjóri á Biskupsstofu. Hann hefur verið virkur í rannsóknum á guðfræði og kvikmyndum um árabil, er meðlimur í Deus ex cinema. Hann er annar tveggja ritstjóra vefs Deus ex cinema (www.dec.is).
Sigrún Óskarsdóttir er prestur. Hún starfar sem verkefnisstjóri á Biskupsstofu á sviði jafnréttismála. Hún hefur sinnt prestsþjónustu í Reykjavík og í Noregi frá árinu 1991. Auk guðfræðimenntunar frá Háskóla Íslands hefur hún viðbótardiplómu í kynjafræði frá H.Í.
Þorkell A. Ottarsson er með B.A. í guðfræði. Hann hefur skrifað greinar og bækur um trúarstef í kvikmyndum og ritstýrði nýlega bók um trúarstef í kvikmyndum Tarkovsky, í samvinnu með Gunnlaugi A. Jónssyni. Hann er annar tveggja ritstjóra vefs Deus ex cinema (www.dec.is).