Kvikmyndirnar og lífið – námskeið hjá Endurmenntun HÍ

Christina Applegate í sjónvarpsþáttunum Samantha Who

Kvikmyndin er einn mikilvægasti miðill samtímans og bíómyndir og sjónvarpsþættir eru stór hluti af daglegu lífi okkar allra. Margir líta fyrst og fremst á kvikmyndir sem afþreyingu, aðrir sem listaverk. Góð kvikmynd getur verið hvort tveggja en hún getur jafnframt verið vettvangur fyrir lífsspurningar. Kvikmyndin getur í raun nýst okkur sem efniviður og uppspretta samræðu um spurningar sem snerta innsta grunn tilverunnar: Hver erum við? Fyrir hvað stöndum við? Hvert stefnum við?

Á námskeiðinu "Kvikmyndirnar og lífið" gefst þátttakendum tækifæri til að kynnast og skoða kvikmyndir út frá þessu sjónarhorni. Námskeiðið hefst með tveimur fyrirlestrum þar sem rætt verður um þessi stef og þátttakendum látin í té verkfæri til að greina og ræða um kvikmyndir. Í framhaldi af því verður farið á þrjár bíómyndir sem sýndar verða á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík. Eftir hverja sýningu verða umræður þar sem þátttakendur geta brugðist við. Að hátíðinni lokinni verður umræðutími þar sem efni námskeiðsins verður dregið saman.

Umsjón með námskeiðinu hefur Árni Svanur Daníelsson. Hann er guðfræðingur og einn af ritstjórum vefsins Deus ex cinema. Hann hefur rannsakað guðfræði og kvikmyndir um árabil og er einn af okkar helstu sérfræðingum á því sviði. Hann hefur skrifað greinar um fjölda kvikmynda og m.a. fjallað um trúarstef í kvikmyndum Andrei Tarkovskys og hjálpræðisstef í kvikmyndum. Hann hefur verið stundakennari við guðfræðideild Háskóla Íslands frá 2003 og m.a. kennt námskeið um trúfræði, praktíska guðfræði og guðfræði og kvikmyndir við Háskóla Íslands. Hann hefur jafnframt haldið fjölda fyrirlestra um þessi efni hérlendis og erlendis.

Dagskrá námskeiðsins er sem hér segir:

Fim. 18. sept., þri. 23. sept. og fim. 9. okt. kl. 20:15-22:00 hjá EHÍ.
Fös. 26. og mán. 29. sept. og mið. 1. okt. eru kvikmyndasýningar.

Námskeiðið er haldið í samstarfi Endurmenntunar og Biskupsstofu. Skráning fer fram á vef Endurmenntunar.