Tvöföld sýning á Börnum og foreldrum

Börn - frétt

Á sunnudaginn kemur verður tvöföld sýning á kvikmyndunum Börn og Foreldrar í Háskólabíói. Fyrri myndin verður sýnd kl. 16 og sú síðari kl. 18. Miðaverð á hvora mynd eru 1000 krónur, en það kostar aðeins 1500 krónur að sjá þær báðar. Þetta eru með athyglisverðustu íslensku myndum síðustu ára og það er full ástæða til að láta þær ekki fara framhjá sér.