Deus ex cinema tekur þátt í dagskrá Kirkjulistahátíðar eins og undanfarin ár. Að þessu sinni er óvenju fjölbreytt dagskrá, með kvikmyndasýningum og umræðum.
Þriðjudagur 14. ágúst kl. 20:00
Pallborðsumræður undir yfirskriftinni Guð á hvíta tjaldinu. Rætt verður um það hvernig kvikmyndagerðarmenn hafa í gegnum tíðina sýnt Guð á hvíta tjaldinu (sem persónu eða á annan hátt). Kvikmyndir Ingmars Bergman og Carl Th. Dreyer verða sérstaklega skoðaðar. Meðal þátttakenda verða dr. Pétur Pétursson, prófessor, sem gaf út bók um kvikmyndir Bergmans, og Oddný Sen, kvikmyndfræðingur, sem er einn af okkar helstu sérfræðingum um kvikmyndagerð Dreyer. Sýnd verða myndbrot úr nokkrum myndum.
Dagskráin er helguð minningu sænska leikstjórans Ingmar Bergman, sem lést í júlímánuði.
Miðvikudagur 15. ágúst kl. 20:00
Þýska kvikmyndin Vier Minuten fékk kvikmyndaverðlaun kirkjunnar á síðasta ári. Það er mikil ánægja að geta sýnt myndina á Kirkjulistahátíð. Á undan sýningunni munu dr. Gunnlagur A. Jónsson og Oddný Sen flytja stuttar innlýsingar. Þau sátu bæði í dómnefndinni sem veitti Vier Minuten verðlaunin. Að henni lokinni fara fram umræður um myndina. Sýningin fer fram í Tjarnarbíói og hefst stundvíslega kl. 20.
Miðaverð: 1.000/600
Fimmtudagur 16. ágúst kl. 23:00
Miðnætursýning á Píslarsögu Jóhönnu af Örk. Meistaraverk eftir Carl Theodor Dreyer
Tónlist eftir Wilfried Kaets
Flytjendur tónlistar:
Wilfried Kaets orgel
Klaus Paulsen tenór
Hin þögla kvikmynd Dreyers um Jóhönnu af Örk er eitt mesta listaverk kvikmyndasögunnar. Hér verður myndin sýnd á stóru kvikmyndatjaldi við fætur Klais-orgelsins í kirkjuskipi Hallgrímskirkju. Þýska tónskáldið og orgelleikarinn Wilfried Keats hefur sérhæft sig í tónlist við þöglar myndir. Hann leikur á stóra Klais-orgelið eigin tónlist ,sem samin er fyrir orgel og tenórsöngvara. Tónlistin er m.a. byggð á stefjum frá miðöldum.
Á undan sýningunni mun Oddný Sen kynna Dreyer stuttlega.
Miðaverð: 1.500/1.000