Gunnlaugur A. Jónsson mun fjalla um efnið Paradísarmissir í nokkrum helfararkvikmyndum í málstofunni Trú, menning og samfélag á Hugvísindaþingi þann 9. mars næstkomandi. Málstofan verður haldin í stofu 207 í aðalbyggingu Háskóla Íslands og stendur frá 15-16:30. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Í málstofunni munu þeir Pétur Pétursson og Hjalti Hugason einnig flytja erindi. Dagskrá er sem hér segir:
Pétur Pétursson: Dultrú og þjóðernishyggja í verkum Einars Jónssonar
Hjalti Hugason: Trúarstef og pólitík í kveðskap Snorra Hjartarsonar
Gunnlaugur A. Jónsson: Paradísarmissir í nokkrum helfararkvikmyndum
Fundarstjóri: Ásdís Emilsdóttir Petersen