Kvikmyndaverðlaun kirkjunnar verða veitt í fyrsta skipti á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík sem lýkur á sunnudag. Verðlaunin verða veitt framúrskarandi kvikmynd sem þykir vekja með áhorfendum áhugaverðar tilvistarspurningar. Verðlaunin verða afhent af biskupi Íslands við hátíðlega athöfn á morgun, laugardaginn 7. október í lokahófi kvikmyndahátíðarinnar í aðalútibúi Landsbankans í Austurstræti kl. 20.
Slík verðlaun hafa verið veitt um árabil erlendis. Ein fyrirmynd íslensku verðlaunanna eru kvikmyndaverðlaun sænsku kirkjunnar sem hafa verið veitt undanfarin ár. Þau féllu í skaut íslensku kvikmyndinni Nói Albinói árið 2003, en í ár var það danska myndin Drömmen sem fékk verðlaunin. Hún verður sýnd á hátíðinni núna.
Við val á kvikmynd verður m.a. horft til þess að myndin teljist góð kvikmynd, að hún veki með áhorfendum tilvistarspurningar, að boðskap hennar megi skoða í ljósi fagnaðarerindisins og að hana megi nota í kirkjustarfi. Fjögurra manna dómnefnd velur verðlaunamyndina. Í henni sitja Árni Svanur Daníelsson, guðfræðingur, dr. Gunnlaugur A. Jónsson, prófessor, Gunnar J. Gunnarsson, lektor, og Oddný Sen, kvikmyndafræðingur. Um verðlaunin keppa 14 myndir sem sýndar eru í flokknum Vitranir á hátíðinni.