Kvikmyndin Listin að gráta í kór eftir leikstjórann Peter Schønau Fog hlaut Kvikmyndaverðlaun Þjóðkirkjunnar sem voru veitt í annað sinn á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík 2007. Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, veitti verðlaunin í lokahófi hátíðarinnar. Leikstjórinn, sem var staddur hér á landi vegna hátíðarinnar, tók við verðlaununum.
Kvikmyndaverðlaun kirkjunnar eru veitt vandaðri kvikmynd sem fjallar um tilvistar-, siðferðis-, eða trúarlegar spurningar. Valið var milli fimmtán kvikmynda sem allar voru sýndar í flokkinum Vitranir á hátíðinni.
Í rökstuðningi dómnefndar segir:
Grátur og hlátur mætast í vandaðri kvikmynd sem fjallar um erfið málefni og vekur spurningar um ábyrgð foreldra og samfélags. Ungur drengur segir sögu fjölskyldu sinnar þar sem bernskuheimilið reynist vera vettvangur ofbeldis og misnotkunar.
Myndin fjallar á nærfærinn um efni sem oft liggur i þagnargildi og tekur á því með virðingu, skilningi og samúð. Listin að gráta í kór vekur til umhugsunar um blæbrigði lífsins, hreyfir við áhorfandanum og kallar á umræður og viðbrögð.
Listin að gráta í kór er fyrsta kvikmynd danska leikstjórans Peter Schønau Fog í fullri lengd. Hann er fæddur í Danmörku árið 1971 og útskrifaðist úr kvikmyndaskóla Danmerkur árið 2000. Í kjölfarið hlaut hann nokkra athygli fyrir útskriftarmynd sína, Lille mænsk (2000).
Listin að gráta í kór segir frá Allan sem er ellefu ára drengur að vaxa úr grasi í Danmörku snemma á áttunda áratugnum. Tilveran er hvorki auðveld né einföld. Stóri bróðir er fluttur að heiman. Pabbinn er sígrátandi og hótar reglulega að fremja sjálfsvíg. Allan lítur upp til föður síns og vill gera allt til að gleðja hann og hjálpa fjölskyldunni. Því skilur hann ekki hvers vegna mamman tekur hótanirnar ekki alvarlega eða hví stóra systir er í vaxandi uppreisn og virðist ekki þola föður þeirra. Með því að bera fram skuggalegt söguefni í gegnum persónu hins unga Allan tekst leikstjóranum Fog að leiða saman húmor, sorg, ofbeldi og bannhelgi innan þessarar trufluðu fjölskyldu á einkar eftirminnilegan hátt í mynd sem hefur vakið mikla athygli og verið margverðlaunuð á kvikmyndahátíðum.
Dómnefndin gat einnig sérstaklega serbnesku kvikmyndarinnar Gildran og skrifaði um hana:
Kvikmyndin Gildran vekur upp spurningar um gildi lífsins og siðferðislegt gildismat. Þetta er afbragðs mynd til að koma af stað umræðu um erfitt siðferðislegt álitamál.
Í dómnefnd voru Árni Svanur Daníelsson, verkefnisstjóri, sr. Bernharður Guðmundsson og Bjarni Randver Sigurvinsson, guðfræðingur.
Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík lýkur í kvöld og verður myndin sýnd í Tjarnarbíói kl. 22.