Fjögurra mínútna viðtal

Vier Minuten - leikið á píanó

Gunnar J. Gunnarsson, meðlimur í Deus ex cinema, segir frá kvikmyndinni Vier Minuten, í stuttu viðtali hér á vefnum. Vier Minuten hlaut kvikmyndaverðlaun kirkjunnar haustið 2006 og hún verður sýnd á Kirkjulistahátíð í ágúst. Sýningin fer fram í Tjarnarbíó og verður miðvikudaginn 15. ágúst kl. 20.

Í viðtalinu segir hann meðal annars:

„Þessi mynd segir frá tveimur konum sem hittast í fangelsi ... sú eldri hefur haft það sem verkefni að kenna föngum á píanó ... Yngri konan býr yfir gríðarlega miklum tónlistarhæfileikum ... Það sem er áhugaverðast við þessa mynd er saga þessara tveggja kvenna ... báðar eiga sína fortíð sem hefur lagt á þær fjötra sem þær hafa ekki getað losnað út úr. Myndin fjallar síðan um það hvernig samband þeirra þróast og hvernig það leiðir til þess að báðar losna, hvor á sinn hátt, úr þessum fjötrum.“