Fyrsta hluta Deus ex Cinema á Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju er nú nýlokið en þar héldu þrír liðsmenn félagsins erindi um margvíslegar birtingarmyndir Guðs í kvikmyndum, jafnt dramatískum listrænum myndum sem vel þekktum gamanmyndum frá síðari árum.
Meðal þeirra kvikmyndagerðarmanna sem teknir voru sérstaklega til umfjöllunar voru Carl Th. Dreyer, Ingmar Bergman, Lars von Trier, Cecil B. DeMille og Kevin Smith. Það voru þau Oddný Sen kvikmyndafræðingur, dr. Pétur Pétursson prófessor og Árni Svanur Daníelsson guðfræðingur sem gerðu grein fyrir helstu verkum þessara kvikmyndagerðarmanna og hvernig túlkun þeirra og reynsla af guðdóminum og hinu heilaga birtist í þeim. Viðstaddir voru um 60 manns sem tóku virkan þátt í umræðum og nutu góðra veitinga sem þar var boðið upp á.
Dagskráin heldur áfram á morgun þegar kvikmyndin Vier Minuten verður sýnd í Tjarnarbíói. Henni lýkur á fimmtudag þegar Píslarsaga Jóhönnu af Örk verður sýnd í Hallgrímskirkju. Miðar á dagskrána fást í Hallgrímskirkju og á vefnum www.midi.is.