Kvikmyndadagskrá Deus ex cinema á Kirkjulistahátíð hélt áfram í kvöld þegar verðlaunamyndin Vier Minuten var sýnd í Tjarnarbíói. Á undan sýningunni fluttu Oddný Sen og Árni Svanur Daníelsson stuttar innlýsingar og að sýningu lokinni ræddu bíógestir um upplifun sína af myndinni. Gerður var góður rómur að henni og meðal annars rætt hversu áhrifamikil hún væri. Ekki síst gildir það um lokaatriðið sem er eitt það magnaðasta sem undirritaður hefur séð.
Hægt er að horfa á og lesa innlýsingarnar hér á vefnum.:
Árni Svanur Daníelsson: Verðlaunamyndin Vier Minuten
Oddný Sen: Andstæður og uppgjör í Vier Minuten
Dagskrá Deus ex cinema á Kirkjulistahátíð lýkur annað kvöld með miðnætursýningu á La passion de Jeanne d'Arc í Hallgrímskirkju. Sýningin hefst kl. 23. Miðar fást í Hallgrímskirkju og á www.midi.is.