Opin sýning hjá Deus ex cinema á Svo sem í skuggsjá

Såsom i en spegel

Deus ex cinema er félag áhugamanna um trúarstef í kvikmyndum sem stofnað var 4. júlí 2000 og er starfrækt af allmörgum fræðimönnum á sviði guðfræði, kvikmyndafræði og listfræði. Sænska kvikmyndin Såsom i en spegel (Ingmar Bergman: 1961) er 500. leikna kvikmyndin sem frumsýnd hefur verið á vegum félagsins en af því tilefni er guðfræðinemum og öðrum áhugamönnum um trúarstef í kvikmyndum boðið að mæta á sýninguna og taka þátt í umræðum.

Um er að ræða fyrstu kvikmyndina í þríleik Bergmans þar sem hann glímir sérstaklega við spurningar um tilvist og eðli Guðs og hvort og þá hvernig hann geti opinberað sig mönnunum. Titillinn er sóttur í kærleiksóð Páls postula þar sem segir: „Nú sjáum vér svo sem í skuggsjá, í ráðgátu, en þá munum vér sjá augliti til auglitis.“ (1Kor 13:12.)

Sýningin hefst kl. 20:00 í kvikmyndasal safnaðarheimilis Keflavíkurkirkju við Kirkjuveg í Reykjanesbæ. Oddný Sen kvikmyndafræðingur mun halda stutt erindi um Ingmar Bergman og þessa kvikmynd hans en gestgjafi kvöldsins er sr. Skúli Sigurður Ólafsson.

Kvikmyndin er 86 mín. að lengd og með sænsku tali og enskum texta.