Miðasala á Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík hófst í dag, en hátíðin sjálf hefst eftir viku. Alls verða sýndar 87 kvikmyndir frá 30 löndum. Fimmtán kvikmyndir keppa um þrenn verðlaun á hátíðinni: Uppgötvun ársins sem eru aðalverðlaun hátíðarinnar, Fipresci gagnrýnendaverðlaunin og kvikmyndaverðlaun kirkjunnar sem verða veitt öðru sinni á hátíðinni í ár.
Þá er hægt að skoða dagskrá hátíðarinnar og sækja dagskrárrit á vefnum.