„Þetta er mynd sem flestir ættu að sjá,“ segir Bernharður Guðmundsson í örviðtali um tékknesku kvikmyndina Vratné Lahve sem er sýnd á kvikmyndahátíðinni. Myndin fjallar um kennara sem fer á eftirlaun og fer að vinna ýmis störf þar sem mikið er um persónuleg tengsl.
Myndin geymir einnig áhugaverðar trúarlegar vísanir, í vanda sínum leitar fólk til trúarinnar og Faðir vorið kemur fyrir í mikilvægu atriði í myndinni. Þessi notkun á Biblíutextum kallast á við fyrri mynd leikstjórans, Kolja, sem má skoða sem útleggingu á 23. sálmi Saltarans.