Kvikmyndaverðlaun kirkjunnar verða veitt öðru sinni á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, sem hefst í dag. Verðlaunin verða veitt framúrskarandi kvikmyndir sem vekur með áhorfendum mikilvægar tilvistarspurningar. Verðlaunin voru veitt í fyrsta skipti í fyrra og komu þá í hlut þýsku kvikmyndarinnar Vier Minuten.
Við val á kvikmynd verður leitað að góðri kvikmynd sem glímir við mikilvægar tilvistarspurningar sem skoða má í ljósi kristins boðskapar. Myndin þarf enn fremur að vera nothæf í kirkjustarfi og ekki of takmörkuð af því samfélagi sem hún sprettur úr. Þriggja manna dómnefnd velur verðlaunamyndina. Í henni sitja Árni Svanur Daníelsson, guðfræðingur, sr. Bernharður Guðmundsson, og Bjarni Randver Sigurvinsson, guðfræðingur. Árni Svanur og Bjarni Randver eru meðlimir í Deus ex cinema hópnum. Um verðlaunin keppa fimmtán kvikmyndir sem eru sýndar í flokknum Vitranir. Myndirnar í flokknum eru allar fyrstu eða önnur verk leikstjóra.
Verðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn, laugardaginn 6. október næstkomandi.
Kvikmyndin verður sífellt mikilvægari miðill og margar kvikmyndir vekja með áhorfendum tilvistarspurningar og nýtast sem eins konar spegill fyrir lífið. Á undanförnum árum hafa kvikmyndir verið notaðar í auknum mæli í kirkjustarfi, haldnar hafa verið stuttar kvikmyndahátíðir og myndir hafa verið fléttaðar inn í fræðslustarf kirkjunnar. Þetta má meðal annars þakka ötulu starfi rannsóknarhópsins Deus ex cinema (www.dec.is) sem heldur úti samnefndri vefsíðu þar sem fjallað er um mikinn fjölda kvikmynda.
Það er Þjóðkirkjan sem veitir verðlaunin og í fyrra voru þau veitt kvikmyndinni Vier Minuten. Í umsögn dómnefndar um hana sagði meðal annars:
„Örlög tveggja kvenna fléttast saman í sögu sem vekur upp spurningar um tilgang lífsins, frelsi, köllun og hæfileika. Fortíð beggja geymir leyndarmál sem hafa mótað þær og fjötrað. Konurnar tengjast í tónlist sem verður vettvangur átaka og farvegur endurlausnar. Óbeislaður sköpunarkraftur og mannleg reisn birtist með áhrifamiklum hætti í eftirminnilegu lokaatriði þar sem náðargjöf fær að njóta sín til fulls. Kraftaverk endurlausnar og sigurs gerist á fjórum mínútum."