Laugardaginn 29. apríl munu þeir Árni Svanur Daníelsson doktorsnemi í guðfræði og dr. Pétur Pétursson guðfræðiprófessor flytja erindi um efnið 'Kærleikurinn í kvikmyndum' í Seltjarnarneskirkju. Hefst dagskáin kl. 15.
Í erindum sínum munu þeir Árni Svanur og Pétur kynna í máli og myndbrotum kvikmyndir eftir Rússann Andrei Tarkovskí og Svíann Ingmar Bergman þar sem Óður Páls postula (1.Korintubréf 13) kemur við sögu.
Dagskrá þessi er liður í níundu Listahátíð Seltjarnarneskirkju sem haldin er undir yfirskriftinni 'Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi.' Kynnir á dagskránni verður dr. Gunnlaugur A. Jónsson guðfræðiprófessor, sem er formaður Listahátíðarnefndar Seltjarnarneskirkju.
Að dagskrá lokinni verður boðið upp á veitingar í Safnaðarheimili kirkjunnar.