Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hefst á morgun

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík er nú haldin í þriðja sinn. Hátíðin í ár er sú umfangsmesta til þessa, en rúmlega 80 myndir í fullri lengd verða sýndar á hátíðinni sem stendur yfir í 10 daga. Fjöldi gesta sækir hátíðina heim, þar á meðal margir leikstjórar sem munu svara spurningum um myndir sínar. Þeirra á meðal eru Goran Paskaljevic, Atom Egoyan og Aleksandr Sokurov, en sá síðastnefndi er handhafi heiðursverðlauna hátíðarinnar í ár.

Afar margar spennandi myndir verða sýndar á hátíðinni í ár og fjöldi þeirra geymir áhugaverð trúar- og siðferðisstef. Meðal áhugaverðra mynda má nefna dönsku myndina Drömmen, en hún hlaut kvikmyndaverðlaun sænsku kirkjunnar fyrr á þessu ári. Leikstjóri hennar, Niels Arden Oplev er gestur hátíðarinnar og hann mun sitja fyrir svörum að lokinni einni sýningu á myndinni.

Aðrar áhugaverðar myndir eru meðal annars Allt annað dæmi - Whole New Thing (Amnon Buchbinder: 2006), leikstjóri hennar mun sitja fyrir svörum á sýningu 30/9 kl. 18:00. Og Frosin borg - Valkoinen kaupunki (Aku Louhimies: 2006), en leikstjóri hennar vakti mikla athygli með myndinni Paha Maa. Louhimies mun sitja fyrir svörum að lokinni sýningu á mynd sinni föstudaginn 6. október kl. 18:00.

Þá má geta þess að kvikmyndaverðlaun kirkjunnar verða veitt í fyrsta skipti á hátíðinni. Slík verðlaun hafa verið veitt erlendis um árabil. Dómnefnd skipuð fjórum fulltrúum velur verðlaunamyndina úr hópi 14 mynda sem sýndar eru í flokkinum Vitranir. Dómnefndina skipa Gunnlaugur A. Jónsson, Oddný Sen, Gunnar J. Gunnarsson og Árni Svanur Daníelsson.

Við munum gera hátíðinni skil hér á vefnum eftir fremsta megni og vonumst jafnvel til að geta birt stutt viðtöl auk umfjallana um einstakar myndir.