„Milljónir“ í kirkjubíói í Glerárkirkju

Þriðjudagskvöldið 11. júlí kl. 19:30 er boðið upp á kirkjubíó í Glerárkirkju. Sýnd verður mynd Millions frá árinu 2004 sem Danny Boyle leikstýrði. Á undan sýningu er stutt kynning á myndinni og boðið verður upp á umræður að sýningu lokinni.

Til að annast þessa dagskrá hefur Glerárkirkja fengið Árna Svan Daníelsson guðfræðing til liðs við sig. Auk þess að vera m.a. einn af meðlimum kvikmyndahópsins Deux ex Cinema er Árni Svanur stundakennari við HÍ þar sem hann hefur fjallað um tengsl kvikmynda og guðfræði. Boðið verður upp á popp og kók. Aðgangur er ókeypis en tekið er við frjálsum framlögum.

Myndin ,,Millions' fjallar um tvo unga bræður, Damian og Anthony, sem finna mikið magn af peningum en bregðast við á gjörólíkan hátt. Bræðurnir sem hafa nýverið misst mömmu sína velta því ekki aðeins fyrir sér hvað þeir eigi að gera við peningana heldur hver tilgangur lífsins sé og hvaða hlutverk við höfum í lífinu. Þegar svo ræningjarnir sem ,,eiga' peningana birtast færist spenna í leikinn og spurning hvernig tveimur skólastrákum tekst að bregðast við þeirri áskorun.

,,Millions' er tilvalin fjölskyldumynd fyrir alla sem vilja meira heldur en ,,bara horfa' á mynd með börnunum sínum. Allir velkomnir.