Kirkjuráð ákvað á fundi sínum nýlega að efna til kvikmyndaverðlauna á vegum Þjóðkirkjunnar. Kvikmyndaverðlaun kirkjunnar verða veitt í fyrsta sinn á kvikmyndahátíð í haust. Hliðstæð verðlaun eru veitt af kirkjum í mörgum nágrannalöndunum. Þannig hlaut Nói Albínói til dæmis kvikmyndaverðlaun sænsku kirkjunnar árið 2003.
Kvikmyndaverðlaun kirkjunnar verða veitt í samvinnu við rannsóknarhópinn Deus ex cinema á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að dómnefnd verði skipuð þremur einstaklingum. Auk fulltrúa frá kirkjunni verður í nefndinni sérfræðingur á sviði guðfræði og kvikmynda og sérfræðingur í kvikmyndum.
Við valið til Kvikmyndaverðlauna kirkjunnar er leitað að góðri kvikmynd sem glímir við mikilvæg mál. Þau geta verið félagslegs eðlis, réttlætismál eða tilvistarspurningar sem skoða má í ljósi kristins boðskapar. Myndin þarf enn fremur að vera nothæf í kirkjustarfi og ekki of takmörkuð af því samfélagi sem hún sprettur úr.
Kvikmyndin er einn mikilvægasti miðill okkar tíma og í fjölda kvikmynda er fjallað um trúar- og tilvistarspurningar. Mikið starf hefur verið unnið hérlendis á undanförnum árum á sviði guðfræði og kvikmynda.