Jesús frá Montreal er fjórða Jesúmyndin af sex sem sýndar eru Neskirkju á sunnudögum kl. 15.00 undir yfirskriftinni Jesúbíó. Myndin er bæði hefðbundin Jesú-mynd og mynd um 'kristsgerving,' þar sem mörkin á milli persónu Jesú og leikarans, sem leikur hann, verða stöðugt ógreinilegri.
Spjótum er beint að yfirborðsmennsku, mannfyrirlitningu og græðgi annars vegar og hins vegar að hræsni trúarleiðtoga og valdníðslu kirkjustofnana. Ásgrímur Sverrisson og Sigurður Árni Þórðarson flytja stutt inngangserindi um myndina fyrir sýningu.
Sýningarnar eru á vegum Guðfræðistofnunar, Deus ex Cinema og Neskirkju og í boði Kristnihátíðarsjóðs. Kaffitorgið opið frá kl. 14. Allir velkomnir.