Jesúbíó á föstu 2006

Kvikmyndasýning verður í Neskirkju sunnudaginn 5. mars kl. 15. Á dagskrá er Jesúmyndin Konungur konunganna frá 1927. Þetta er vissulega 'stórmynd', vitnisburður um trúarlega innlifun og metnaðarfulla kvikmyndalist þess tíma. Þetta er fyrsta myndin af sex sem sýndar verða í kirkjunni næstu sunnudaga um Jesú Krist eða kristsgervinga - Jesúbíó á föstu 2006.

Sýningarnar verða í safnaðarheimili Neskirkju og hefjast kl. 15. Á undan hverri sýningu verða stuttir fyrirlestrar og myndin rædd í ljósi kvikmyndafræði og guðfræði. Umræður verða að sýningu lokinni. Aðgangur er ókeypis. Sýningarnar eru öllum opnar og í boði Kristnihátíðarsjóðs. Að sýningum standa Guðfræðistofnun, Deus ex cinema og Neskirkja.

Á fyrstu sýningunni verður sýnd The King of Kings. Leikstjórinn er Cecil B. DeMilles. Myndin hafði mikil áhrif á sínum tíma varðandi ímynd Jesú og andlit Henry B. Warner varð í hugum margra ásýnd Frelsarans. Myndin sýnir yfirvegaðan en fjarrænan Jesú. Senurnar eru næsta stórkostlegar. Á undan sýningu munu Björn Ægir Norðfjörð og Gunnar J. Gunnarson skýra efni og umræður verða eftir sýningu. Björn skýrir kvikmyndaverkið og Gunnar hugar að guðfræðinni. Kaffihús Neskirkju verður opið frá kl. 14.
Sýningardagar og myndir
5/3: King of Kings
12/2: The Gospel According to St Matthew
19/3: Jesus Christ Superstar
26/3: Jesus of Montreal
2/4: Miracle Maker
9/4: The Gospel of John
Nánar um myndirnarThe King of Kings
Leikstjóri: Cecil B. DeMille
Aðalleikari: Henry B. Warner
Tekin í Bandaríkjunum
Lengd 112 mín.

Hér er um að ræða klassíska Jesú-mynd, og af mörgum talin það góð að í raun væri óþarfi að gera fleiri. Áhrif myndarinnar voru slík að í hugum margra leit Jesús út eins og Henry B. Warner sem í myndinni er í hlutverki Jesú Krist. Sá Jesús sem hér mætir okkur er æðrulaus, yfirvegaður og fjarrænn, sem af öðrum heimi.
The Gospel According to Matthew - 1964
Leikstjóri: Pier Paolo Pasolini
Framleiðandi: Alfredo Bini
Handritahöfundur: Pier Paolo Pasolini
Aðalleikari: Enrique Irazoqui
Tekin upp á Ítalíu.
Lengd: 142 mín.

Augljóst andsvar við bandarísku Jesú-myndunum, sem komu út um svipað leyti. Þetta er svart-hvít mynd, sem byggir á texta Mattheusarguðspjalls og skartar ómenntuðu fólki í helstu hlutverkum. Hér er sjáum við reiðan Krist, sem ögrar samtímafólki sínu með harkalegum og krefjandi boðskap.
Jesus Christ Superstar - 1973
Leikstjóri: Norman Jewison
Framleiðandi: Norman Jewison og Robert Stigwood
Handritahöfundur: Norman Jewison og Melvyn Bragg
Söngtextar: Tim Rice
Tónlist: Andre Lloyd Webber
Aðalleikari: Ted Neely
Tekin upp í Ísrael.
Lengd: 107 mín.

Í myndinni/söngleiknum er píslarsaga Krists sett á svið, að hætti hinna hefðbundnu píslarleikja. Hér hefur mennskan náð yfirhöndinni á kostnað guðdómsins þar sem Jesús er fyrst og síðast tilfinningavera, sem efast um köllun sína og er alls ekki viss um hvert hlutverk hans er. Þessi mynd/söngleikur var í upphafi umdeildur fyrir túlkun sína á Jesú Kristi og ekki síst fyrir að gefa í skyn að hann hafi átt í ástarsambandi við Maríu Magdalenu.
Jesus de Montreal – 1989
Leikstjóri: Denys Arcand
Framleiðendur: Roger Frappier og Pierre Gendron
Handritahöfundur: Denys Arcand
Aðalleikari: Lothaire Bluteau
Tekin upp í Montreal, Kanada
Lengd: 119 mín.

Bæði hefðbundin Jesú-mynd og mynd um kristsgerving, þar sem mörkin á milli persónu Jesú og leikarans, sem leikur hann, verða stöðugt ógreinilegri. Hér er fókusinn settur á hlutverk gagnrýnandans, sem annars vegar beinir spjótum sínum gegn yfirborðsmennsku, mannfyrirlitningu og græðgi, og hins vegar hræsni trúarleiðtoga og valdníðslu kirkjustofnana.
The Miracle Maker. The Story of Jesus – 2000
Leikstjórar: Stanislav Sokolov og Derek Hayes
Framleiðandi: Naomi Jones
Handritahöfundur: Murray Watts
Lengd: 87 mín.

Þetta er leirmynd með teiknimyndainnskotum, sem gerð er fyrir börn. Frásagan um Jesús í þessari mynd er að mörgu leyti mjög hefðbundin, en sérstaða myndarinnar felst í sjónarhorninu, en hér er sagan um Jesús séð með augum lítillar stúlku, Tamar, dóttur Jaírusar samkundustjóra, sem Jesús reisti upp frá dauðum.
The Gospel of John - 2003
Leikstjóri: Philip Saville
Handritshöfundur: John Goldsmith
Aðalleikari: Christopher Plummer (Sögumaður), Henry Ian Cusick (Jesús Kristur)
Tekin upp: Á Spáni og í Kanada
Lengd: 180 mín.

Þetta er ein nýjasta Jesúmyndin. Hún er gerð eftir Jóhannesarguðspjalli og fylgir texta guðspjallsins nokkuð nákvæmlega. Stuðst er við hina svonefndu Good News Bible útgáfu. Christopher Plummer er sögumaðurinn sem leiðir áhorfendur í gegnum guðspjallið. Myndin er hluti af seríu sem kallast The Visual Bible og miðar að því að gera kvikmyndir út frá öllum ritum Biblíunnar. Hún þykir með áhugaverðari Jesúmyndum, m.a. fyrir það hvernig farið er með samband hins mannlega og guðlega í Jesú.
Stýrihópur
Í undirbúningshóp eru: Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir frá Guðfræðistofnun, Árni Svanur Daníelsson, guðfræðingur, frá Deus ex Cinema og sr. Sigurður Árni Þórðarson frá Neskirkju.