Píslarsagan í kvikmyndum á Hugvísindaþingi

Hugvísindaþing verður haldið föstudaginn 18. nóvember. Í einni málstofunni, Píslarsagan: túlkun í máli og myndum, verða fluttir fyrirlestrar þar sem komið verður inn á píslarsögur í kvikmyndum. Tveir meðlimir í Deus ex cinema hópnum, Arnfríður Guðmundsdóttir og Árni Svanur Daníelsson, munu ræða um píslarsögurnar í kvikmyndunum The Passion of the Christ og Super Size Me. Málstofan verður haldin í stofu 111 í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 8:30. Aðgangur er ókeypis.
Útdrættir erindannaArnfríður Guðmundsdóttir: Ofurmennska og ofbeldi í píslarmynd Mel Gibsons
Kvikmynd Mel Gibsons um píslargöngu Krists, sem fumsýnd var í upphafi föstu árið 2004, vakti strax mikla athygli og afgerandi viðbrögð víða á Vesturlöndum. Í Bandaríkjunum sló myndin fljótlega aðsóknarmet, ekki síst vegna gífurlegrar aðsóknar kirkjufólks, sem skundaði í bíó til þess að minnast þar pínu og dauða frelsara síns. Margir gagnrýndu myndina harðlega, á meðan aðrir lofuðu hana hástöfum. Ekki var óalgengt að fólk myndaði sér skoðun um myndina áður en hún var frumsýnd. Réði þar miklu linnulaus fjölmiðlaumræða síðustu vikurnar fyrir frumsýningu, sem og þaulskipulögð markaðssetning, ekki síst á meðal íhaldsamra kirkjuhópa.

Í þessu erindi verður leitast við að skilgreina kristsmyndina sem Gibson dregur upp í píslarmynd sinni og skoða túlkun hans á þjáningu og dauða Krists í sögulegu og guðfræðilegu samhengi. Í myndinni gegna ofbeldi, þjáning og blóð mikilvægum hlutverkum og engin takmörk virðast fyrir þeirri þjáningu sem Kristur þolir. En sá Kristur sem Gibson kynnir til sögunnar er ekki bara ofur-menni (í líkingu við ofur-hetjuna í öðrum myndum Gibsons), hann er um leið hinn líðandi þjónn, sem er „eins og lamb sem leitt er til slátrunar“ (Jes 53.7b) og tekur þegjandi á móti örlögum sínum. Hér er gengið út frá því að gildi fórnarinnar ráðist af magni þjáningarinnar. Því meiri þjáning, þeim mun stærri er fórnin. Gibson reynir hér að draga fram kærleika Krists, en líka umfang syndar og sektar mannsins, sem kallar á sáttargjörð við Guðs.

Túlkun Mel Gibsons á píslarsögu Krists vekur upp stórar og áleitnar guðfræðilegar spurningar, ekki aðeins um hlutverk þjáningar og mennsku Krists, heldur einnig guðsmyndina sem býr þar að baki. Þá verður ekki komist hjá því að spyrja um frelsi (og ábyrgð) kvikmyndaleikstjórans til þess að túlka píslir Krists á þann hátt sem hann gerir. Ólíkt mörgum eldri Jesú-myndum gengur Gibson út frá því að þjáning Krists sé raunveruleg, en mynd hans ber ekki aðeins vitni um oftúlkun á þjáningunni, heldur einnig upphafningu hennar, þar sem þjáningin hefur gildi í sjálfri sér. Slík túlkun opnar fyrir réttlætingu á ofbeldisverkum, og kemur hugsanlega í veg fyrir að veitt sé mótspyrna gegn því sem veldur þjáningu og illsku.
Árni Svanur Daníelsson: Píslarsaga í yfirstærð
Ein áhugaverðasta áróðurs/heimildarmynd undanfarinna ára er kvikmyndin Super Size Me frá árinu 2004. Myndin fjallar um skyndibita, neysluvenjur og ofát. Hún greinir frá tilraun kvikmyndagerðarmannsins Morgan Spurlock sem borðaði aðeins mat frá McDonalds í heilan mánuð. Þetta gerði hann til að kanna áhrif slíkrar skyndibitaneyslu á mannslíkamann.

Dagarnir þrjátíu urðu að eins konar píslargöngu Spurlocks sem gekk í gegnum miklar þrautir, jafnt líkamlegar og andlegar. Afrakstur tilraunarinnar er kvikmynd hefur hefur að markmiði uppfræðslu um skaðsemi ofáts á skyndibita og hvatningu til neyslu á hollum mat. Þegar hún er skoðuð sem píslarsaga Spurlocks koma í ljós áhugaverðar hliðstæður við píslarsögu Jesú Krists og kristnar hugmyndir um gildi og hlutverk krossdauðans. Í erindinu verður rætt um þessar hliðstæður og bent á það hvernig skoða má Super Size Me sem nútímalega útfærslu á píslarsögu Krists.