Tíu kvikmyndir frá Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð, voru tilnefndar til hinna nýju Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2005 og nú hefur verið tilkynnt að danska myndin Drabet bar sigur úr býtum. Verðlaunin verða afhent í tengslum við þing Norðurlandaráðs á Íslandi miðvikudaginn 26. október. Í tilefni af hinum nýju verðlaunum verða tilnefndu kvikmyndirnar sýndar í Háskólabíó dagana 17. – 22. október næstkomandi.
Að hátíðinni standa Norræna húsið, Norðurlöndin í fókus, Norræna ráðherranefndin, Samstarfsnefnd um kennslu í Norðurlandafræðum erlendis og Norrænir sendikennarar við Háskóla Íslands og verða myndirnar sýndar samtímis í Finnlandi, Svíþjóð, Danmörku og Noregi.
Beate Bille, leikari í verðlaunamyndinni Drabet, verður viðstödd sýningu myndarinnar miðvikudaginn 19. október og mun taka þátt í málstofu um norrænar samtímakvikmyndir sem haldið verður í Norræna húsinu sama dag kl. 14 – 17. Þar flytja erindi Finn Gjerdum, framleiðandi norsku myndarinnar Hawaii, Oslo, Ruben Østlund, leikstjóri og handritshöfundur sænsku myndarinnar Gitarrmongot og Johan Bylund, sem leikur í myndinni, Jón Proppé, sem fjallar um Gargandi snilld, Baltasar Kormákur, framleiðandi Dísar, Torben Godal, prófessor í kvikmyndafræðum við Kaupmannahafnarháskóla og Oddný Sen, kvikmyndafræðingur og rithöfundur. Annette Lassen spjallar við Beate Bille, leikara myndarinnar Drabet.
Dagskrá
Mánudag 17/10:
18:00 Gitarrmongot. Svíþjóð. Ruben Østlund og Johan Bylund kynna. Enskur texti.
22:00 Vinterkyss. Noregur.
Þriðjudagur 18/10:
18:00 Dís
22:00 Paha Maa / Eyðilönd. Finland. Enskur texti.
Miðvikudagur 19/10:
17:15 Gargandi snilld
22:00 Drabet. Danmörk. Beate Bille kynnir.
Fimmtudagur 20/10:
20:00 Hawaii, Oslo. Finn Gjerdum kynnir.
Föstudagur 21/10:
17:15 Gargandi snilld
Laugardagur 22/10:
17:00 Gargandi snilld.
19:00 Pusher II. Danmörk. Enskur texti.
21:00 Melancholian 3. Finland. Enskur texti.
23:00 Ett hål i mitt hjärta. Svíþjóð. Enskur texti.
Miðaverð á einstakar myndir er 800 kr en einnig verður hægt að kaupa hátíðarpassa sem gildir á allar myndirnar tíu fyrir 4000 kr. Aðgangur að málstofunni 19. október er ókeypis.