Guð á hvíta tjaldinu

Guð á hvíta tjaldinu er fyrsta bók Deus ex cinema hópsins. Hér er á ferðinni ritgerðasafn sem er ritstýrt af guðfræðingunum Bjarna Randver Sigurvinssyni, Gunnlaugi A. Jónssyni og Þorkeli Ágústi Óttarssyni. Hún geymir fjórtán greinar eftir tíu höfunda sem allir eru meðlimir í Deus ex cinema.

Bókin skiptist í fimm hluta þar sem farið er yfir ólík svið rannsókna á trúarstefjum í kvikmyndum. Um hana hefur m.a. verið sagt:

„... gott framlag til kvikmyndaumræðu á Íslandi.“
Björn Þór Vilhjálmsson, Morgunblaðið 14-12-2001

„Því ber að fagna að á Íslandi skuli vera til staðar hópur fræðimanna sem hefur snúið sér að þessu verkefni. ... Bókin er athyglisvert framtak og það verður spennandi að fylgjast með framhaldinu ...“
Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, www.kirkjan.is, 23-02-2002

„[M]jög áhugaverðar [túlkanir] og opna oftar en ekki nýja sýn, ekki aðeins á kvikmyndirnar sem til umfjöllunar eru, heldur bjóða þær einnig uppá innsýn í guðfræði samtímans, viðfangsefni hennar, hugtök og nálganir.“
Úlfhildur Dagsdóttir, kistan.is, 17-04-2002

Fyrsti hluti: Kvikmyndin sem boðberi trúar

Í fyrsta hlutanum er fjallað um hvernig kvikmyndin getur birst sem boðberi trúarinnar, en þar er m.a. komið inn á Star Wars og 2001: A Space Odyssey.

Ólafur H. Torfason: Handritið skrifaði guðspjallamaðurinn Lúkas

Annar hluti: Kristur og kristsgervingar

Í öðrum hlutanum er gefið yfirlit yfir helstu jesúmyndirnar og fjallað sérstaklega um svonefnda kristsgervinga, en þá má finna í kvikmyndum eins og Dead Man Walking og Breaking the Waves.

Arnfríður Guðmundsdóttir: Kristur á hvíta tjaldinu. Um túlkun á persónu og boðskap Jesú Krists í kvikmyndum

Gunnlaugur A. Jónsson: Babette býður til veislu

Pétur Pétursson: Grettir, Hallgrímur Pétursson og Clint Eastwood: Jesúgervingar í bókmenntum og kvikmyndum

Þriðji hluti: Biblíustef

Þriðji hlutinn er tileinkaður Biblíustefjum, en þar er t.d. fjallað um tengsl Blade Runner við söguna af Adam og Evu, Magnoliu við plágurnar tíu í Egyptalandi og Cast Away við kenningar Lúthers um lögmál og fagnaðarerindi.

Árni Svanur Daníelsson: Brottkast manns: Lögmál og fagnaðarerindi og kvikmyndin Cast Away

Gunnar J. Gunnarsson: Froskar og frelsun í Magnoliu

Jóhanna Þráinsdóttir: Kolja og 23. sálmur

Þorkell Ágúst Óttarsson: Það er eitthvað rotið í Eden: Edenstef í kvikmyndinni Blade Runner

Fjórði hluti: Trúarhreyfingar

Fjórði hlutinn greinir frá ýmsum trúarhreyfingum í kvikmyndum, en þar eru m.a. kvikmyndirnar The Chosen og Holy Smoke teknar fyrir.

Bjarni Randver Sigurvinsson: Heilaþvottur, hugstjórnum eða sjálfstæð ákvörðun: Umdeildar stjórnmálahreyfingar og trúarhreyfingar í kvikmyndum

Gunnlaugur A. Jónsson: Hinn útvaldi: Gyðingleg kvikmynd skoðuð af sjónarhóli 1. sálms Saltarans

Ólafur H. Torfason: Mannlíki og mannskepnur - frá Maníkeum til Matrix

Fimmti hluti: Trúarstef í kvikmyndum Kieslowskis

Síðasti hluti bókarinnar er svo tileinkaður pólska kvikmyndagerðamanninum Krzysztof Kieslowski og er fjallað um nokkrar af þekktustu kvikmyndum hans.

Gunnar J. Gunnarsson: Frelsi og kærleikur í kvikmyndinni Þrír litir: Blár eftir Krzysztof Kieslowski

Ingólfur Hartvigsson: Dekalog 1

Pétur Pétursson: Tvöfalt líf Veróniku í ljósi djúpsálarfræðinnar

Guð á hvíta tjaldinu - kápa