Viðauki: Dæmi úr The Truman Show

Hér er að finna sjö mínútna dæmi sem gefur innsýn í það hvernig kvikmyndagerðamenn sækja í sögur Biblíunnar. Gott væri að byrja á því að sýna þennan sjö mínútna bút og biðja áhorfendur um að skrá niður allar þær biblíuvísanir sem þeir koma auga á. Eftir að þið hafið rætt um senuna væri tilvalið að sýna hana aftur, og spyrja áhorfendur síðan hvort þeir sjái myndbrotið í öðru ljósi.

Kvikmyndin The Truman Show (Peter Weir: 1998) sló rækilega í gegn á sínum tíma. Hún ætti að vera fáanleg á flestum myndbandaleigum (upprunalegt hlutfall myndarinnar er 1.85:1). Myndin fjallar um Truman sem var ættleiddur af kvikmyndafyrirtæki en allt frá fæðingu hafa allar hans gjörðir verið kvikmyndaðar og sýndar í beinni útsendingu um allan heim. Heimurinn sem hann býr í er risastór sviðsmynd og allir sem hann þekkir eru aðeins leikarar, meira að segja foreldrar hans og eiginkona.
Lokaatriði myndarinnar er gott dæmi um hvernig kvikmyndagerðamenn nota biblíusögur og myndmál í myndum sínum. Við skulum líta náið á 7 mínútur, en þar er Truman að flýja kvikmyndaverið. Leikstjóri sjónvarpsþáttarins hefur hins vegar skellt á miklu roki til að drekkja Truman.

81:00 Truman í ólgusjó. Í myndinni er hafið tákn dauðans og glundroða en sú túlkun er algeng í Biblíunni.
81:28 Skútan sem Truman notar til að sigla yfir hafið á heitir Santa María, sama og móðir Jesú. Á ferðinni yfir hafið (á Maríu meyjar skútunni) eru einnig margar kriststilvísanir.
83:35 Bandið sem Truman bindur um sig myndar kross um bringu hans.
84:00 Hann „deyr“ eins og Kristur.
84:16 Truman í krossfestingarstellingu með bandið í kross um brjóst sér. Undir heyrist orgeltónlist.
84:35 Truman „rís síðan upp frá dauðum“ þegar hann kemur upp úr hafinu. Upprisusenan minnir einnig á skírn Krists en þegar hann kemur upp úr vatninu fellur sólstafur á hann og handleggir hans eru í krossfestingarstellingu.
87:30 Þegar Truman yfirgefur skútuna gengur hann meðfram veggnum en það lítur út eins og hann gangi á vatni.
87:57 Eftir að hafa „gengið“ á vatninu í smá tíma stígur hann upp til himna og inn um himnadyr, þ.e. hann gengur inn um dyr í himnahvelfingunni í sviðsmyndinni.

Hægt er að skoða mörg önnur stef í myndinni, svo sem edenstefið en þessar sjö mínútur ættu að duga til að sýna hversu ríkulega kvikmyndagerðamenn sækja í biblíulegt myndmál. Þótt hæpið sé að kalla Truman kristsgerving, þar sem hann bjargar aðeins sjálfum sér, er engu að síður ljóst að kvikmyndagerðamennirnir vilja gefa frelsun hans trúarlegan undirtón með öllum þessum vísunum.