Umsagnir um Amazing Grace

Við sáum bandarísku myndina Amazing Grace á Deus ex cinema sýningu í vikunni. Þetta er nýleg mynd sem fjallar um William Wilberforce og afnám verslunar með þræla í Bretlandi. Það er margt áhugavert við þessa mynd og hún vakti með mér spurningar um það að hvaða marki svona mynd talar inn í samtíma okkar og það „þrælahald“ sem viðgengst í dag.

Peter Chattaway bloggar um myndina í færslunni Amazing Grace -- thumb up, thumb down og Russ Breimeier dæmir myndina á vef Christianity Today.