Ég fékk fyrirspurn eftir málþingið í Seltjarnarneskirkju um trúarstef í indverskum kvikmyndum. Ég hef ekki kynnt mér þau neitt að ráði en mundi þó eftir tveimur bókum þar sem fjallað er um þetta efni. Datt í hug að geta þeirra líka hér á torginu þannig að fleiri gætu lagt orð í belg og miðlað af sinni reynslu og þekkingu:
Í The Religion and Film Reader (ritstj. Jolyon Mitchell og S. Brent Plate) er komið inn á indverskar kvikmyndir og kvikmyndagerð í nokkrum köflum.
Svo er það bókin Filming the Gods: Religion and Indian Cinema eftir Rachel Dwyer. Hún fjallar almennt um indverska kvikmyndagerð og trúarstef – eins og titillinn ber reyndar með sér.
Nokkrar indverskar kvikmyndir hafa verið sýndar hjá Deus ex cinema. Meðal þeirra er Black (Sanjay Leela Bhansali:2005) sem ég lagði út af í prédikun í Hallgrímskirkju.