Hrollvekjan Predator er hefðbundin harðhausamynd. Karlmennirnir eru að springa af karlhormónum og á það jafnt við um vöxt þeirra, stæla, húmor og vopn. Gott dæmi er t.d. þegar Poncho segir við Blain: „You're bleeding, man!“ Og Blain svarar: „I ain't got time to bleed!“ Slíkar staðalmyndir er að sjálfsögðu afskaplega þreyttar og alls ekki æskilegar fyrir óharðnaða unglinga, sem er einmitt sá hópur sem sækist hvað mest í svona myndir.
Það er einkennandi við þessar myndir að aðalpersónan fyrirlítur yfirboðara sína, sbr. orð Dutch (Arnold Schwarzenegger) þegar hann leggur gamlan félaga sinn í sjómann, en sá hafði yfirgefið vígvöllinn og tekið að sér stjórnunar- og skrifstofustörf fyrir CIA: „What's the matter? The CIA got you pushing too many pencils?“ Óbeit þeirra á yfirvöldum er yfirleitt réttmætt, enda kemur það á daginn að á meðan Dutch er heilindin uppmáluð verða ráðamennirnir uppvísir að lygum og svikum.
Geimveran er nokkrum sinnum sögð vera djöfull, sem er áhugavert í ljósi þess að hún dregst einkum að ofbeldi og ranglæti rétt eins og hún sé afkvæmi blóðugra átaka svæðisins. Þá er það viðeigandi að kalla geimveruna djöful, enda er hún illskan holdi klædd.
Nokkuð er um trúarleg áköll og siði í myndinni, svo sem ákall til Guðs og Maríu meyjar og signun. Indíáninn treystir reyndar á verndargrip sinn framan af (ekki kemur fram hvaða átrúnað hann aðhyllist), en gefst að lokum upp þegar hann áttar sig á því að hvorki verndargripir né vopn virðast bíta á þessa ókind.
Það er áhugavert að skoða afstöðu myndarinnar til tækninnar. Þótt hersveitin sé búin öllum tæknilegustu vopnum, sem hægt er að hugsa sér, tekst henni ekki að ráða niðurlögum geimverunnar. Það er ekki fyrr en Dutch hverfur aftur til náttúrunnar, smíðar sér boga og setur upp gildrur af náttúrulegum toga sem eitthvað fer að ganga. Það er því ljóst að þótt vísindin séu góð, koma þau aldrei í staðin fyrir frumstæða verkkunnáttu mannsins.